Til hamingju með daginn!

Þetta er merkisdagur, Hanna systir á afmæli í dag, hún er ekki nema tvítug lítil stúlka. Ég man þennan dag fyrir tuttugu árum (kræst, how old am I???) Ég gisti hjá ömmu og afa á Dalvík og vaknaði inni í stofu með Siggu frænku við þær fréttir að ég væri búin að eignast litla systur, þá var ég bara sjö ára. Ég held að ég muni samt hvernig náttfötum ég var í.
Lilja systir hans Óla á líka afmæli í dag. Hún hélt uppá tíu ára afmælið sitt daginn sem Hanna systir fæddist. Þetta er sannkallaður stórafmælisdagur.
Við ætlum að leggja í reisu á föstudaginn og athuga hvort við finnum einhverjar kökurestar fyrir norðan.


Miðvikudagur 11. maí 2005 kl. 12:20
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

hanna:

takk fyrir þessa sögu - hafði ekki hugmynd um þetta!! :D Já það eru alltaf til kökur hérna hjá Hönnu litlu systir! ;)

11.05.05 15:19


baddy:

magnað, það eru bara allir að kíkka norður, birkir kemur líka norður á föstudag og við vorum að spá í að borða heima á haugó á laugardag og þá ætlaði hanna sys líka að koma.....hvar verðið þið, kannski bara þar líka..??

11.05.05 21:06


baddy:

hömmm... change of plans, birkir kemst ekki á laugardaginn þannig að við erum að spá í að hafa matinn á sunnudag!!..komist þið?!

11.05.05 21:44


hanna:

uhh stelpurnar ætla að halda uppá afmælið mitt á sunnudaginn þannig að ég verð búsí þá! Því miður :( Ekki nema það verði hádegismatur á sunnudaginn?? Ég er alveg til í það!

12.05.05 12:31


baddy:

er þetta nokkuð dæmigert!! ma og pa eru að fara í fermingarveislu og það er messa þannig að þetta er ekki alveg að ganga upp!!:(

12.05.05 14:42


Dagný:

já stúlkur mínar, þetta er erfitt... við finnum eitthvað út úr þessu. :)

12.05.05 19:16