kvöldmaturinn
Þegar við vorum fyrir norðan síðast gaf pabbi okkur saltfisk sem við elduðum í kvöld. Ég hef aldrei verið mikil saltfiskmanneskja, þrátt fyrir að geta státað af áralangri starfsreynslu í vinnslu hans, þannig að eitthvað varð að malla úr honum annað en þetta hefðbundna.
Reyndar fengum við hugmyndina að eldun hans í morgunsjónvarpinu og stóðumst ekki mátið. Saltfisk risotto. Auðvelt og merkilega gott!
Uppskriftin er á vefnum www.kokkarnir.is en ég leyfi mér að láta hana fylgja hér ásamt því twisti sem ég set í hana. (sem er merkt með +)
Fyrir 4
350 Risotto hrísgrjón (Tilda Arborio)
1 lítri Kjúklingasoð (má nota vatn og kraft)
2 stk Shallot laukar
4 stk Hvítlauksrif
60 gr Ósaltað smjör
100 gr Rifinn parmesan
600 gr Saltfiskur roð og beinlaus
1 msk Ólífu olía
Salt
fersk steinselja, söxuð
+ nokkrir helmingaðir kirsuberjatómatar
+ 2msk rifinn mozarella ostur
Athugið að ekki er hægt að nota venjuleg hrísgrjón.
Best er að nota sérútvatnaðan saltfisk
Aðferð:
Hitið soðið upp í sér potti. Þetta er mjög mikilvægt því að vatninu er bætt smátt og smátt út í og suðan á grjónunum má ekki minka því þá er hætta á að grjónin verði hrá í miðjunni.
Skerið shallot laukinn niður ásamt hvítlauknum. Hitið ólífu olíuna í víðum potti bætið shallot lauknum og hvítlauknum út í og svitið aðeins þangað til laukurinn verður glær, bætið þá grjónunum út í og steikið þau með lauknum í svona mínútu. Setjið þá eina til tvær ausur af soði út í. Lækkið hitan svo að grjónin soðni ekki of fljótt yst og gætið þess að hræra reglulega. Látið grjónin taka í sig vökvann áður en næstu ausu af soði er bætt út í og endurtakið þetta þar til grjónin eru orðin mjúk en samt svolítið "al dente" (al dente=mjúkt undir tönn). Skerið saltfiskinn í c.a. 2 c.m strimla og leggið ofan á grjónin. Þegar saltfiskurinn er búinn að vera útí í c.a. 2-3 mínútur setjið þá smjörið og parmesan ostinn út í og hrærið aðeins og látið síðan standa í 2-3 mínútur. Gott er að skreyta með saxaðri steinselju.
Grænmeti
1 stk rauðlaukur
1 stk Rauð paprika
1 box kirsuberjatómatar
Salt og pipar
Olía til steikingar
Aðferð:
Skerið rauðlaukinn og paprikuna gróft og tómatana í tvennt. Steikið létt á pönnu og berið fram með saltfisk Risottó-inu.
etið
Flokkað sem matur. Þar eru 43 færslur.

