drifið á daga mína
Ég skil ekkert í mér, ég er búin að vera undarlega þögul síðustu daga. Samt er af nógu að taka. Danni er reyndar búinn að vera veikur þannig að ég hef aðallega verið að þrífa upp ælu af gólfinu og þvo þvott. Það er samt allt að lagast og hann er orðinn sprækur aftur.
Baddý systir kom norður um helgina og á sunnudaginn fórum við til vinkonu hennar á Þorlákshöfn sem er fínn "brúnkari" (í guðanna bænum ekki mislesa þetta orð!!) og hjá henni fengum við þessa fínu brúnku. Mín er reyndar að dofna af en það er búið að vera æði að vera með smá lit (til að sýna meðan ég hef verið að þrífa upp gubbið...)! Var um tíma að spá í að aflita á mér hárið til að vera í stíl, en svo hætti ég við ;)
Baddý fór svo til NYC á mánudaginn og ég hef ekkert heyrt af henni síðan, er vonandi í góðu yfirlæti hjá henni Berglindi, ég bað hana að versla í þremur búðum fyrir mig; Apple, babyGap og Toys'R us. Svo kemur hún heim með einhverjar sendingar sem Óli var búinn að panta frá Cabelas.
Ég hlakka óstjórnlega til að fá hana heim aftur.
Það eru engar nýjar fréttir að það er ódýrara að versla í útlöndum, hins vegar átti Hannes Hólmsteinn gullkorn í fréttablaðinu í dag þegar hann sagði að neytendur sýni ábyrgðarleysi því þeir eigi að versla vörur þar sem þær eru ódýrastar, og allir hafa núorðið efni á fljúga til London og almenningur ætti þá bara að versla meira þar!
*Kúúkúú! Ég held að sumir séu ekki í sambandi!
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
HAhahha, var Baddý ekki að koma suður?
Þið Norðlendingar ætlið aldrei að fatta að þið búið fyrir sunnan. Held ég hafi heyrt alla Norðlendinga sem ég þekki sem búa fyrir sunnan gera þessa sömu villu.
Bwahahaha ég tók ekkert eftir þessari vitleysu hjá þér - fannst þetta svo eðlilegt!! :D híhíhí
hahhaa.. vá, ég fattaði þetta ekki! ég var sko fyrir norðan í síðustu viku... er þar greinilega ennþá! ;)
Freyja:
Þetta er svona krónísk áttavilla sem hrjáir okkur norðanfólk, líka mig :)

