finnish design

Það er hægt að finna margt dásamlegt í Finnish Design Shop, mynstrin þarna eru mörg hver alveg meiriháttar, langar að mála svona upp á vegg.

Þriðjudagur 31. maí 2005 kl. 23:42 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

drifið á daga mína

Ég skil ekkert í mér, ég er búin að vera undarlega þögul síðustu daga. Samt er af nógu að taka. Danni er reyndar búinn að vera veikur þannig að ég hef aðallega verið að þrífa upp ælu af gólfinu og þvo þvott. Það er samt allt að lagast og hann er orðinn sprækur aftur.
Baddý systir kom norður um helgina og á sunnudaginn fórum við til vinkonu hennar á Þorlákshöfn sem er fínn "brúnkari" (í guðanna bænum ekki mislesa þetta orð!!) og hjá henni fengum við þessa fínu brúnku. Mín er reyndar að dofna af en það er búið að vera æði að vera með smá lit (til að sýna meðan ég hef verið að þrífa upp gubbið...)! Var um tíma að spá í að aflita á mér hárið til að vera í stíl, en svo hætti ég við ;)
Baddý fór svo til NYC á mánudaginn og ég hef ekkert heyrt af henni síðan, er vonandi í góðu yfirlæti hjá henni Berglindi, ég bað hana að versla í þremur búðum fyrir mig; Apple, babyGap og Toys'R us. Svo kemur hún heim með einhverjar sendingar sem Óli var búinn að panta frá Cabelas.
Ég hlakka óstjórnlega til að fá hana heim aftur.
Það eru engar nýjar fréttir að það er ódýrara að versla í útlöndum, hins vegar átti Hannes Hólmsteinn gullkorn í fréttablaðinu í dag þegar hann sagði að neytendur sýni ábyrgðarleysi því þeir eigi að versla vörur þar sem þær eru ódýrastar, og allir hafa núorðið efni á fljúga til London og almenningur ætti þá bara að versla meira þar!
*Kúúkúú! Ég held að sumir séu ekki í sambandi!

Miðvikudagur 25. maí 2005 kl. 22:58 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 4

sending frá barcelona

Langar að segja *takk* og knús* við Ágústu fyrir bókina frá Barcelona! Skemmtileg bók og mjög óvænt :)

Miðvikudagur 25. maí 2005 kl. 22:31 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

the former yugoslavian republic of iceland?

Það er merkilegt hvað margir eru ennþá í fýlu út í Eurovision og þessari klíku sem henti okkur út úr keppninni, ömurlegt að tilheyra minni klíkunni sem er samt svo miklu merkilegri en hin.
Ég stend við það sem ég sagði í fyrra, Leoncie á bleikum naríum næst.

Þriðjudagur 24. maí 2005 kl. 20:16 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video / 1

helgin

Norðurlandið var kvatt fyrir helgi og við tók yfirseta yfir veikum dreng með hita og gubbupest um helgina. Því var matarboði föstudagsins afþakkað og áformum um evróvision partý afturkölluð. Drengurinn hefur nú náð sér að fullu en það er vont að vera lítill og lasinn og geta illa tjáð sig, þá vill maður bara sitja í fanginu á mömmu sinni.

Sunnudagur 22. maí 2005 kl. 23:43 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem uppeldi

júró design

Það er áhugavert að renna yfir lógóin sem hafa verið á söngvakeppninni alveg síðan 1957, ég er sérstaklega hrifin af 1966 og því sem er í gangi núna, ágætlega heppnað skipulag sem byrjaði í fyrra í Tyrklandi. Rosalega er samt búið að vera ljótt dót fyrir þetta undanfarin 10 ár, mesta stuðið er Sweden 1985 og Belgía 87 er líka alveg að gera sig.. hahaha

Fimmtudagur 19. maí 2005 kl. 13:29 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

norðurland, jaki og júró

Það hefur verið hljótt á þessum vígstöðvum, ég og sonurinn erum búin að dvelja fyrir norðan síðan fyrir helgi, ákváðum í skyndi að senda Óla heim á undan okkur á mánudaginn var, þannig að hann hefur geta stundað sitt golf eftir vinnu samviskubitslaust. Á meðan ræktar Danni tengslin við ömmurnar og afana. Þetta stutta sumarleyfi endar í fyrramálið þegar flugvélin fer með okkur í loftið.
Það er búið að vera gaman að fylgjast með ísjakanum hérna rétt fyrir utan. Hann er búinn að vera einstaklega fallegur í sólskininu undanfarið en við, sem þráum stuttbuxnaveður og sumaryl, fáum hérna heldur kuldalega áminningu um það að við búum á norðurhjara veraldar.
Í kvöld ætlum við systur að hittast ásamt góðum gestum og horfa á þessa einstöku keppni sem Eurovision er, sirkússýning sagði Selma í hádegisfréttunum.

Fimmtudagur 19. maí 2005 kl. 12:58 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

Til hamingju með daginn!

Þetta er merkisdagur, Hanna systir á afmæli í dag, hún er ekki nema tvítug lítil stúlka. Ég man þennan dag fyrir tuttugu árum (kræst, how old am I???) Ég gisti hjá ömmu og afa á Dalvík og vaknaði inni í stofu með Siggu frænku við þær fréttir að ég væri búin að eignast litla systur, þá var ég bara sjö ára. Ég held að ég muni samt hvernig náttfötum ég var í.
Lilja systir hans Óla á líka afmæli í dag. Hún hélt uppá tíu ára afmælið sitt daginn sem Hanna systir fæddist. Þetta er sannkallaður stórafmælisdagur.
Við ætlum að leggja í reisu á föstudaginn og athuga hvort við finnum einhverjar kökurestar fyrir norðan.

Miðvikudagur 11. maí 2005 kl. 12:20 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 6

Form Islandia

Ragnar Freyr er farinn af stað aftur, í þetta sinn er það Form Islandia. Þetta verður mjög fróðlegt að fylgjast með, og vonandi leggja eitthvað af mörkum líka. Síðan Icelandic National Team lagði upp hefur maður lítið heyrt af gossi nema bloggsíðurnar spretta upp á víð og dreif. Form Islandia verður hins vegar annað og sterkara en INT, meira verið að reyna að kafa í kjarnann. Hvað er íslensk hönnun?

Miðvikudagur 11. maí 2005 kl. 00:01 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

Mánudagsýsan

Kvöldmaturinn var í boði Krakkaeldhúsins, uppskriftabók með uppáhalds matnum úr leikskólanum. Flögufiskur. Soðin hrísgrjón, Ýsa, sósa úr sveppa- og blaðlauksosti, grænmetisblöndu og smá mjólk mixað saman og hellt yfir, smá mozzarella ostur og svo paprikuflögum stráð yfir. Bakað í ofni í ca 30-45 min. Skal setja inn nákvæmari uppskrift ef einhver óskar.

Mánudagur 09. maí 2005 kl. 20:56 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / 5

verslunarferð

Við Danni fórum út í stórmarkað í morgun, ég skildi hann -treg reyndar- eftir sofandi í kerrunni fyrir utan og gat ráfað frjáls um í búðinni, sem varð til þess að ég keypti allt of mikið.. náði að troðfylla körfuna undir kerrunni, sem þýddi vel kramið brauð, og var svo með bleiupakkann hangandi á handfanginu.
Ég held svona eftirá að ég hafi verið svolítið skrautleg.. dragandi kerruna um allt hverfið með barnið sofandi, með vikubyrgðir af mat (mætti halda) og bleiurnar danglandi framaná. Ég veit ekki hvað þeir sem sáu til mín hafi haldið. Kannski að ég væri aðþrengd eiginkona, svona Lynette týpa, búin að helga líf mitt kúkableium og andvökunóttum og að það sé minn frami í lífinu. Ef ég hefði verið með skilti framaná mér sem á stæði "mér finnst þetta víst gaman!" hefðu enn fleiri haldið að ég væri í afneitun.
En sennilega voru ekki margir að horfa út um gluggann eða að pæla nokkuð í þessu.

Mánudagur 09. maí 2005 kl. 18:48 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið

þráðlaus

Fullt af nýjum bolum á Threadless, spurning hvort maður eigi að fara að panta sér aftur? sem minnir mig á það að ég ætlaði alltaf að senda myndir af mínum bolum til að fá stig, ég er svo mikill sökker fyrir svoleiðis.

Mánudagur 09. maí 2005 kl. 16:43 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

"Petals around the rose"

Ég er að fara á taugum yfir því að fatta ekki "petals around the rose" og ekki skánar það þegar maður les hvað aðrir hafa átt auðvelt með að kveikja á fattaranum.
Ars-Liv leikurinn er að verða búinn og þá mun hjálpin berast úr stofunni,.. ekki það að ég sé að gefast upp.....haa

Sunnudagur 08. maí 2005 kl. 16:58 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni / 3

Vorsýning Listaháskólans

Í dag opnaði vorsýning útskriftarnema við Listaháskóla Íslands í Listasafni Íslands, Kjarvalsstöðum. Ég sé hana óneitanlega aðeins öðrum augum en margir aðrir því ég stóð í þessum sporum sjálf fyrir tveimur árum; að kynna, standa og falla með verkefni sem maður hefur lifað og hrærst í, í margar vikur, auk þess að vera þarna á palli sem verðandi hönnuður og aðrir spyrja í huga sér hvað maður hafi eiginlega fram að færa. Kannski er það bara ég sem tek ég þessu svona hátíðlega.
Það voru nokkuð margir staddir þarna í dag þannig að ég fór yfir þetta á svolitlum handahlaupum, ætla þess vegna að fara fljótlega aftur en langar samt aðeins að segja nokkur orð um sýninguna, með svolitlum fyrirvara samt.

› framhald...

Laugardagur 07. maí 2005 kl. 23:59 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

Miss Broderi in action!

mittens.jpg Einar Gylfason, sem er grafískur hönnuður hjá Óinu og kenndi mér m.a. síðasta veturinn í LHÍ, hafði samband um daginn til að fá afnot af letrinu Miss Broderi, sem ég gerði sem lokaverkefni í skólanum, fyrir verkefni sem hann var að gera. Sem var auðvitað ekkert nema sjálfsagt. Hann sendi mér útkomuna sem mér finnst alveg snilldarleg. Það er gaman að sjá litlu börnin sín vaxa úr grasi :)

Laugardagur 07. maí 2005 kl. 23:45 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 2

Vefsíðan

Jæja, ég er enn að pússa þetta allt til og það tók aðeins lengri tíma en ég ætlaði. Sennilega mun eitthvað breytast næstu daga, einhverjar fínpússningar eftir.
Mig langaði alltaf að halda áfram með myndabloggið, ég á fínt safn af stökum myndum sem mig langar að setja upp og þetta hvetur mig líka áfram til að taka skemmtilegar myndir. Ég ákvað að hafa það á ensku eins og síðast, málið er að ég fæ enn mikið af erlendum gestum og margar af þessum myndum sem ég á eru svolítið há-dú-jú-læk-æsland-legar. Þú skilur.
En já, batnandi manni er bezt að lifa.

Laugardagur 07. maí 2005 kl. 23:45 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

verslunardagur

Ég held að ég verði ekki leið á því að versla barnaföt. Við Danni fórum um alla Smáralindina í dag, skoðuðum heilmikið og keyptum ýmislegt, meðal annars nokkra nærboli á hann. Ég er ennþá að ná mér að ég skuli vera farin að kaupa stærð 86 á barnið (sem er vel rúmt reyndar) finnst ég hafa verið að kaupa nr 56 í gær. Svo sé ég einhver dásamlega kjút lítil föt og bráðna alveg, en þegar ég finn númerið hans eru þau svo hlussuleg og afskræmd. Ég hef fullnægt fatakaupsþörfinni undanfarna mánuði á strákinn svo hillurnar mínar hafa þjáðst svolítið, ég er að reyna að bæta úr því en undanfarið hefur bara ekkert sérstakt sem hefur heillað mig hérna. Ég er kannski innst inni að vonast til að komast í H&M í útlöndum, enda grasið undantekningarlaust grænna hinumegin.

Föstudagur 06. maí 2005 kl. 22:03 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem uppeldi

vorverkin

í blíðviðrinu í dag tók ég mér það bessaleyfi að róta aðeins í beðunum hérna í garðinum. Ég þarf reyndar ekkert leyfi svosem enda eigum við einhvern 12.5% hlut í þessum garði, sem er sirka skikinn sem við löbbum á út úr garðinum. Ég fyllti tvo ruslapoka af spreki, hitti nokkra massa stóra og skrautlega snigla (er ekki örugglega eitrað fyrir svoleiðis á vorin annars?) og fékk vonandi einhvern smá lit í framan. Ef veðrið verður gott á morgun gæti verið að ég fari aftur út því það eiginlega sér ekki högg á vatni eftir daginn í dag, svoleiðis er ástandið í garðinum.

Þriðjudagur 03. maí 2005 kl. 21:07 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / 2

kvöldmaturinn

Þegar við vorum fyrir norðan síðast gaf pabbi okkur saltfisk sem við elduðum í kvöld. Ég hef aldrei verið mikil saltfiskmanneskja, þrátt fyrir að geta státað af áralangri starfsreynslu í vinnslu hans, þannig að eitthvað varð að malla úr honum annað en þetta hefðbundna.
Reyndar fengum við hugmyndina að eldun hans í morgunsjónvarpinu og stóðumst ekki mátið. Saltfisk risotto. Auðvelt og merkilega gott!

› framhald...

Mánudagur 02. maí 2005 kl. 22:16 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem matur

menning

Litla fjölskyldan ætlaði að gerast menningarleg í dag og fékk sér labbitúr niður að höfn þar sem mér skildist að hönnunarnemar í lhí væru með sýningar í flutningabílum. Þetta er nú ekki langt labb en þegar þangað var komið voru engir nemar og hvað þá flutningabílar. Bara túristar að skoða malbikið og taka myndir hvert af öðru. Nú jæja þá, einhver misskilningur.
Við ultum þá inn í Kolaportið og þaðan mjög fljótlega út aftur og ákváðum að stoppa og fá okkur kakó á parís, parkeruðum syninum sofandi í kerrunni við Austurvöll. Enginn var að mótmæla á Austurvelli. Kröfugöngur eru liðin tíð greinilega, allir heima að horfa á fótbolta eða reita arfa og blóta í hljóði.
Eftir kakóbollann var sonurinn vaknaður og litla fjölskyldan ákvað að gera eina tilraun enn til að vera menningarleg, ég mundi eftir því að börnin á leikskólanum Sæborg, sem sonurinn kemst vonandi inn á þarnæsta haust, eru með myndlistarsýningu í Ráðhúsinu. Þarna var sköpunargleðin algjörlega óheft, barnlegt sakleysi mætir hrollkenndri vísindaskáldsögu.
Þar fékk öll fjölskyldan þann menningar og sköpunarinnblástur sem hún leitaði eftir á þessum sunnudegi.
Svo ákváðum við að nenna ekki að labba upp úr kvosinni heldur hoppuðum í strætó og vorum komin heim alveg um leið.

Sunnudagur 01. maí 2005 kl. 15:57 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem uppeldi