sumarið er tíminn

Sumarsæla.. trúi því að sumarið sé komið. Ég tók mjög gáfulegar ákvarðanir fyrr í vor þegar ég ákvað að vera í fríi í sumar. Eftir mánaðarmót munum við Danni leika okkur saman heima; fara út að hjóla, moka sand, taka myndir, lesa bækur... ultradásemd í allt sumar, alveg fram í ágúst! Þá tekur harðneskjulegur raunveruleikinn við, en það er enn langt í það.
Danni er að verða öflugri bloggari en ég, þó ýmislegt sé í gangi þá er ég lítið í því að skrifa það hér niður þessa dagana.
það kemur.


Þriðjudagur 26. apríl 2005 kl. 11:10
Flokkað sem heimilið. Þar eru 66 færslur. / uppeldi. Þar eru 47 færslur.

/ Álit

baddy:

ohh enn gaman, þá verð ég dugleg að kíka til ykkar á milli vakta og við gerum eitthvað skemmtileg. sniðugar svona vaktavinnur þá getur maður verið í fríi á daginn meðan aðrir vinna!! (en svo reyndar þarf mar að vinna þegar aðrir eru í fríi!! - en skiptir ekki því þið mæðgin verðið alltaf í fríi!!!) - ok komið gott!

27.04.05 12:29