morgunmatinn í rúmið?
Ég er alveg hrikalega löt við það að borða morgunmat á morgnana. Yfirleitt hef ég ekki verið með neina matarlyst þá, helst drekk ég kannski glas af eplasafa áður en ég rýk út. Ég reyndar komst inn í ágætis rútínu með morgunmatinn þegar ég var heima með Danna, þá fékk ég mér cheerios með jógúrt sem er alveg ágætt en einhvernvegin dettur það núna uppfyrir þegar maður hefur eytt of miklum tíma í að sjæna sig á morgnana. Það kemur því fyrir að ég fer út með tóman maga og man svo kannski ekki eftir því að borða fyrr en undir hádegi, sem er alveg arfavitlaust!
Eins og svo margt er þetta bara spurning um vana; að venja sig á að byrja á því að fá sér eitthvað. Rútína er hamingja.
Eitthvað í mér langar pínu að skoða þetta Spirulina dót sem fæst í apótekinu, auglýsingarnar (þó ljótar séu) glepja mann alveg en ég veit samt ekki um neinn sem hefur notað þetta. Æji annars trúi ég ekki á töflur.
Flokkað sem matur. Þar eru 41 færslur.
/ Álit
Ég er búin að japla á nokkrum spirulinupillum nánast á hverjum degi frá því í janúar og finnst það hafa góð áhrif. Ég hef alla vega verið mjög hraust, alveg sloppið við kvef og flensur og ég er ekki frá því að ég sé aðeins orkumeiri og glaðari.
Alla vega, þó maður trúi nú ekki á einhverjar töfralausnir þá tel ég nokkuð ljóst að þetta getur ekki gert manni annað en gott þar sem þetta er nú lítið annað en vítamínblanda sem líkaminn hefur gott af. Þetta eu náttúrlega bara samanþjappaðir blágrænþörungar og þeir eru víst fullir af efnum sem gleðja líkama og sál.
takk fyrir þetta Svanhildur, þetta var einmitt það sem ég þurfti :)
fyndið að eftir að ég skrifaði þetta fór ég að horfa á desperate housewifes þar sem Lynette fer að bryðja ofvirknilyf sona sinna.. hvað gera ekki örvæntingarfullar húsmæður í dag ;)
en jú, ég hef trú á spirulina, það virðist allavega vera nokkuð heilsusamlegt.



RSS veita