góðan daginn!

Maður finnur að dagurinn er farinn að verða lengri, allt ennþá bjart um kvöldmatarleytið og sólin komin upp á morgnana áður en það fer að braka í stírunum.
Reyndar er sonur minn orðinn hinn mesti morgunhani (skil ekki hvaðan hann hefur það!) og er farinn að syngja þegar klukkan er ennþá 6:eitthvað og enn langt í að síminn segi okkur að snúsa sig. Allavega þá fær stubburinn, eftir að vera búinn að góla og hóa (ekki enn farinn að reisa sig alla leið upp samt) í einhvern tíma að koma upp í og kúra aðeins hjá okkur... og það að kúra er það sama og að hnoðast í hans orðabók.. Það er að leggjast á magann og slengja svo hausnum í hökuna á mömmu sinni og reyna svo að rúlla sér yfir hana. Það gengur í svona hálftíma þá gefst mamman upp og viðurkennir að dagurinn sé runninn upp.
Ég er búin að ákveða að næsta fjárfesting heimilisins verða myrkvatjöld fyrir svefnherbergisgluggana. Ég held að það ætti að vera staðalbúnaður í íbúðum á þessu landi, og þó það gefi ekki nema hálftíma í auka morgunsvefn, tala nú ekki um helgarsvefinn, þá er það þess virði.


Mánudagur 11. apríl 2005 kl. 23:41
Flokkað sem uppeldi. Þar eru 47 færslur.

/ Álit

kristjana:

úff skil hvað þú átt við með morgunhana...embla vöknuð sex á laumorgunn og hálfsex á sunnmorgunn í feiknafjöri:)

12.04.05 13:07