þessi dagur

29. apríl hefur alltaf verið fallegur dagur og dagurinn í dag er engin undantekning. Frá því ég man eftir mér hefur alltaf verið dásamlegt vorveður á þessum degi, kannski er ég bara búin að blokka alla hina dagana út, en svona er þetta í minningunni.
Það er reyndar ekkert planað í dag, sennilega býð ég fólkinu í vinnunni upp á pizzaveislu í hádeginu, búin að panta grillaðan lax með bakaðri kartöflu og grísku salati hjá bóndanum í kvöldmatinn, annað er óráðið.
Þetta er jú ekki svo merkilegt, bara eitt ár í viðbót.


Föstudagur 29. apríl 2005 kl. 09:02
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

Tryggvi R. Jónsson:

Ég ætla nú samt að óska þér til hamingju með daginn ;)

29.04.05 10:42


Dagný:

Þakka þér :)

29.04.05 10:51


baddy:

hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag,
hún á afmæl´ún dagný
hún á afmæli í dag!
til hamingju með daginn systir góð

29.04.05 13:13


gunna:

Til hamingju með daginn frænka :)

29.04.05 14:46


hanna:

Til hamingju með daginn elsku systir!! núna kemur þetta líklegast á réttum degi! ;) hehe.. talandi um að vera vonlaus systir!!
en það er aldrei að vita nema það bíði þín pakki einhverstaðar í draslinu hjá mér!! ;)
Hafðu það gott!

29.04.05 14:57


áslaug:

Til hamingju með dæginn sæta... sjámust vonandi í sumar á akureyrinni ;)

29.04.05 19:47


kristjana:

Hæ sæta afmælisbarn, til hamingju með 27 aldursárið gamla mín:)
Hún Monsa mín heitin átti einmitt þennan afmælisdag...blessuð sé minning hennar.

njóttu kvöldsins með kappanum þínum

29.04.05 20:21


Freyja:

Til lukku með daginn, ég hélt uppá hann með því að klæða mig í búning og skemmta mér allann daginn. Ég meira að segja fékk flesta krakkana í skólanum með mér, við skemmtum okkur mjög vel á afmælisdeginum þínum ;)

Vonandi hafðir þú það alveg svaka gott....

01.05.05 22:33