æ karamba!
Í gær elduðum við mexikanskt nachos salat með kjúklingi sem var alveg svívirðilega gott, það er í raun allt mex sem manni dettur í hug; chilibaunir, maísbaunir, paprika, tómatar, nachos, hot salsa, avocado, chili, ferskur koriander... sett í eldfast mót með svolitlum osti og hitað í ca korter við 200´ getur varla klikkað. Nema í gær þá komumst við að því að ísland er algjörlega kórianders-laust í dag, þe þetta ferska er ófáanlegt, reyndar athuguðum við ekki í hagkaup, drottningu matvörubúðanna, en ef melabúðin og nóatún (sem stilla sig inn á gourmet) klikka þá er ástandið ekki gott.
Ég vænti þess því að kórianderinn sem ég sáði og er að vaxa í eldhúsglugganum hjá mér, verði seldur á uppsprengdu verði, ef ástandið heldur svona áfram.
Flokkað sem matur. Þar eru 41 færslur.
/ Álit
gunna:
Já, nauðsynlegt að eiga kóríander í glugganum. Reyndar held ég að maður verði að hafa það í hitakassa.. frekar viðkvæm planta eitthvað. en jú, oftast hægt að treysta á Hagkaup...
hefurðu smakkað 'ferskt' guacamole? mæli með því;
4 girnilegri tómatar, smátt skornir (ekkert alltof tiny samt)
1-2 avocado (eftir stærð, 1-2 daga gömul. mega ekki vera of hörð), smátt brytjuð
1/2 hálfur lítill laukur, mjög smátt saxaður
2 lime, safinn kreistur yfir
a pinch of salt to taste...
borið fram með frekar náttúrulegum, nachos flögum, td doritos skífunum sem eru svona stórar hvítar og létt saltaðar.
og kannski kaldur bjór með ;)
Dagný:
já, ég er reyndar bara með hann í svörtum plastbakka (undan nautahakki) og ég vona að það, ásamt morgunsólinni, nái að halda hita í því. Annars býst ég ekki við að það lifi nema bara rétt í sumar. Það gefur líka svo góða lykt.
Svona guacamole er rosa gott, og fínt að setja smá chili líka.. en ekki of mikið :)



RSS veita