þessi dagur
29. apríl hefur alltaf verið fallegur dagur og dagurinn í dag er engin undantekning. Frá því ég man eftir mér hefur alltaf verið dásamlegt vorveður á þessum degi, kannski er ég bara búin að blokka alla hina dagana út, en svona er þetta í minningunni.
Það er reyndar ekkert planað í dag, sennilega býð ég fólkinu í vinnunni upp á pizzaveislu í hádeginu, búin að panta grillaðan lax með bakaðri kartöflu og grísku salati hjá bóndanum í kvöldmatinn, annað er óráðið.
Þetta er jú ekki svo merkilegt, bara eitt ár í viðbót.
arkitektar
Það er svolítið gaman að skoða hvernig skipulag Mýrargötu hefur verið unnið. Mér finnst arkitektar yfirleitt gera frekar smart og skemmtilegar myndir. Það er hægt að leika sér alveg ótrúlega með þetta.
hugurinn ber mig hálfa leið
Í gærkvöldi á meðan Óli var í körfu hannaði ég nýtt útlit á bloggið þar sem þetta er orðið frekar þreytt og hnjaskað. Núna get ég ekki hætt að hugsa um það og iða í puttunum í að setja það upp, og hreinlega hef ekki lyst í að skrifa neitt hérna fyrr en það er komið upp. Svona er maður bilaður.
Það er hér ægi fagurt veður. Væri alveg til í að vera að hjóla á fisher með syninum á Ægissíðunni akkúrat núna.
Maryquits.com
Hún Mary er að reyna að hætta að reykja og gerir það á frekar opinberan hátt!
once you go mac..
Núna verð ég að fara að fá mér mac. annað er ekki hægt. Ég er algjörlega ástfangin af þessum gaur sem ég sit við í vinnunni, reyndar er ég ekki sérstaklega hrifin af skjánum þar sem það er erfitt að vera nákvæmur með litina á honum, allt annað er bara rokk!
Ég ætla samt að byrja á því að fá mér ipod, Baddý systir ætlar að koma með hann frá NY. Þá verður ekki aftur snúið.
sumarið er tíminn
Sumarsæla.. trúi því að sumarið sé komið. Ég tók mjög gáfulegar ákvarðanir fyrr í vor þegar ég ákvað að vera í fríi í sumar. Eftir mánaðarmót munum við Danni leika okkur saman heima; fara út að hjóla, moka sand, taka myndir, lesa bækur... ultradásemd í allt sumar, alveg fram í ágúst! Þá tekur harðneskjulegur raunveruleikinn við, en það er enn langt í það.
Danni er að verða öflugri bloggari en ég, þó ýmislegt sé í gangi þá er ég lítið í því að skrifa það hér niður þessa dagana.
það kemur.
LOST
hvað er málið með þessa þætti? á maður alveg að fara á taugum eða hvað?
fyrsta afmælið
Það hefur mikið gerst og lítið verið skrifað. Prinsinn á heimilinu er orðinn eins árs. Sumardagurinn fyrsti var afmælisveislu dagur og af því tilefni fylltist húsið af afmælisgestum. Föstudagurinn sl. var síðan hinn eiginlegi afmælisdagur. Ég er búinn að upplifa þennan dag fyrir ári síðan aftur og aftur í huganum, einstakur dagur.
Prinsinn er búinn að hafa ömmur og afa til að leika við í nokkra daga og dótinu í kringum hann hefur fjölgað svo um munar. Það er hins vegar að verða meiri kyrrð í höllinni og lífið að komast í eðlilegra horf.
Prinsinn er mjög ákafur í að ganga og það er bara dagaspursmál hvenær hann fær öryggi og jafnvægi í að ganga alveg sjálfur. Við lifum á óskaplega spennandi tímum.
frétt á mbl.is
Þetta er eiginlega með því betra sem ég hef heyrt!
lesefni fyrir helgina
Ég held að það sé algjörlega málið að fara og ná sér í bæði cosmo og elle þessa dagana. Nema þetta sé svona týpískt íslenskt verðstríð þar sem bara eitthvað british ferða journal drasl og sex ára gömul sænsk krosssaumsblöð eru á útsölu. Svona eins og Open Bar í mexicoferðinni þar sem maður gat drukkið eins og manni lysti... af tequila og kahlua. æðislegt.
ég ætla samt að tékka á cosmó
föstudagsmál
Einhvernvegin finnst mér ekki vera föstudagur í dag, það er eitthvað svo miðvikudagslegt. Þessi vika er búin að vera alveg ágæt og óvenju fljót að líða en gott til þess að hugsa að helgin sé framundan með sinni hugartæmingu og skemmtilegheitum.
Mig langar að benda á góðan föstudagslestur á visi.is þar sem fjallað er um auglýsingar umferðaráðs og gatnakerfið í borginni sem er alltaf að verða sorglegra og gallaðra að mínu mati. Ég er afskaplega sammála þessum skrifum og hrifin af þessum auglýsingum en því miður held ég að heimur bestnandi fari ekki. Hvað sem það nú þýðir.
morgunmatinn í rúmið?
Ég er alveg hrikalega löt við það að borða morgunmat á morgnana. Yfirleitt hef ég ekki verið með neina matarlyst þá, helst drekk ég kannski glas af eplasafa áður en ég rýk út. Ég reyndar komst inn í ágætis rútínu með morgunmatinn þegar ég var heima með Danna, þá fékk ég mér cheerios með jógúrt sem er alveg ágætt en einhvernvegin dettur það núna uppfyrir þegar maður hefur eytt of miklum tíma í að sjæna sig á morgnana. Það kemur því fyrir að ég fer út með tóman maga og man svo kannski ekki eftir því að borða fyrr en undir hádegi, sem er alveg arfavitlaust!
Eins og svo margt er þetta bara spurning um vana; að venja sig á að byrja á því að fá sér eitthvað. Rútína er hamingja.
Eitthvað í mér langar pínu að skoða þetta Spirulina dót sem fæst í apótekinu, auglýsingarnar (þó ljótar séu) glepja mann alveg en ég veit samt ekki um neinn sem hefur notað þetta. Æji annars trúi ég ekki á töflur.
HP6
það verður allavega ein bók lesin í sumar þar sem ég er búin að panta næstu bók um Potterinn. Hún kemur reyndar ekki fyrr en í júlí en ég hugsa að ég geti beðið.
vefur dagsins
Uppáhalds vefurinn minn í dag er islenskt.is. Þar er fullt af fínum upplýsingum um íslenskt grænmeti, næringargildi, geymslu og meðhöndlun. Hann gæti alveg litið betur út, það eru alltaf smáatriðin sem klikkað er á, en þetta sleppur alveg. Hins vegar finnst mér þetta íslenska lúkk hjá sölufélagi garðyrkjumanna mjög flott. Þarna eru margar uppskriftir sem er alveg þess virði að prófa.
smáatriðin skipta máli
örlitlar útlitsbreytingar, svona smá upplyfting áður en ég hendi þessu út og set upp eitthvað nýtt.. það er alltaf á leiðinni.
góðan daginn!
Maður finnur að dagurinn er farinn að verða lengri, allt ennþá bjart um kvöldmatarleytið og sólin komin upp á morgnana áður en það fer að braka í stírunum.
Reyndar er sonur minn orðinn hinn mesti morgunhani (skil ekki hvaðan hann hefur það!) og er farinn að syngja þegar klukkan er ennþá 6:eitthvað og enn langt í að síminn segi okkur að snúsa sig. Allavega þá fær stubburinn, eftir að vera búinn að góla og hóa (ekki enn farinn að reisa sig alla leið upp samt) í einhvern tíma að koma upp í og kúra aðeins hjá okkur... og það að kúra er það sama og að hnoðast í hans orðabók.. Það er að leggjast á magann og slengja svo hausnum í hökuna á mömmu sinni og reyna svo að rúlla sér yfir hana. Það gengur í svona hálftíma þá gefst mamman upp og viðurkennir að dagurinn sé runninn upp.
Ég er búin að ákveða að næsta fjárfesting heimilisins verða myrkvatjöld fyrir svefnherbergisgluggana. Ég held að það ætti að vera staðalbúnaður í íbúðum á þessu landi, og þó það gefi ekki nema hálftíma í auka morgunsvefn, tala nú ekki um helgarsvefinn, þá er það þess virði.
allt við það sama
ég tók smá tiltektar og pússningarrispu á blogginu á laugardagskvöldið (á meðan hatrammur def jam bardagi stóð yfir í stofunni). Meðal annars setti ég inn þennan glugga í myndasafnið en komst ekki lengra með að útfæra stílinn á honum. Að öðru leyti var helgin róleg og venjuleg vinnuvika framundan.
*skjálf*
hver pantaði þetta ógeðslega veður!!! mér er kalt inn að beini... hvernær hættir maður að láta bjóða sér þetta og fer að drekka kokteil á heitri strönd í sandölum með hatt?
rokk og ról!
Hver þarf að hafa itunes í gangi þegar það er partý á Kaffi Skít?
símasaga
Vinnan mín er búin að hafa sama símanúmerið í 4-5 ár. Þar rétt á undan var þetta númer tengt við Hótel Sögu í fjöldamörg ár en þegar það losnaði þá nældum við í það vegna þess að þetta var gott númer, óafvitandi um "sögu" þess. Þetta hefur orðið til þess að í öll þessi ár þá er annaðhvert símtal þannig að menn vilja fá samband við eldhús, bóka herbergi, finna gesti og þess háttar, og furða sig á því þegar við segjum; no, this is an advertising agency. -oftast á ensku því útlendingar hringja í meira mæli, sennilega margir enn með gamlar skrár eða upplýsingar. Samt mikið um íslendinga líka sem hringja og það þarf yfirleitt að segja þeim það þrisvar að þetta er EKKI HÓTEL SAGA!! :)
Þetta er hætt að fara í taugarnar á mér, finnst það oftast bara fyndið að fólk skuli vera með svona gamlar upplýsingar, hef reyndar aldrei verið svo vond að taka niður bókun á herbergi. Í morgun hringdi hins vegar einn náungi sem talaði íslensku með hreim, sennilega arabískum eða tyrkneskum hreim, ekki alveg viss en samtalið var einhvernvegin svona:
Dagný: Mixa hönnun, Dagný
Náungi: já mig vantar vinnu hjá þér
D: já, þá þarftu að senda tölvupóst
N: en ég á ekki tölvu
D: hmm
N: get ég ekki bara komið?
D: nei, ég ræð þessu ekki, sú sem ræður verður við seinna í vikunni
N: seinna í vikunni? en mig vantar vinnu núna, ég get gert hvað sem er, skúra..
D: já þvi miður, þú verður bara að hafa samband seinna
N: Seinna? en ég verð að fá pening núna! ég skulda svo mikið, hvað á ég að gera??
D: já því miður get ég ekki hjálpað þér, þú verður að leita annað líka, ég held líka að það sé ekkert laust (líst ekki á blikuna)
N: en ég er búin að hringja út um allt og verð að fá vinnu strax það er búið að hóta mér ég skulda svo mikið, þú verður að láta mig fá vinnu
D: því miður ég get ekkert hjálpað þér
N: það er búið að hóta að saga af mér puttana (og fleiri lýsingar sem ég fer ekki nánar í) ég verð að fá vinnu og pening strax
D: því miður, leitaðu áfram og gangi þér vel
N: jæja en get ég komið og búið hjá þér?
D: (ekki að kveikja) (svolítið skelkuð: nei því miður, vertu sæll og gangi þér vel
..um leið og ég lagði á fattaði ég að auðvitað var maðurinn að reyna að fá vinnu á Hótel Sögu, ef þetta var eitthvað gabb þá vona ég líka að hann haldi að hann hafi verið að að gabba símadömuna á Sögu.
æ karamba!
Í gær elduðum við mexikanskt nachos salat með kjúklingi sem var alveg svívirðilega gott, það er í raun allt mex sem manni dettur í hug; chilibaunir, maísbaunir, paprika, tómatar, nachos, hot salsa, avocado, chili, ferskur koriander... sett í eldfast mót með svolitlum osti og hitað í ca korter við 200´ getur varla klikkað. Nema í gær þá komumst við að því að ísland er algjörlega kórianders-laust í dag, þe þetta ferska er ófáanlegt, reyndar athuguðum við ekki í hagkaup, drottningu matvörubúðanna, en ef melabúðin og nóatún (sem stilla sig inn á gourmet) klikka þá er ástandið ekki gott.
Ég vænti þess því að kórianderinn sem ég sáði og er að vaxa í eldhúsglugganum hjá mér, verði seldur á uppsprengdu verði, ef ástandið heldur svona áfram.
CSS beauty
ég er búin að vera að spurla á fullu ("hef verið að skoða" flokkurinn til vinstri fyrir þá sem ekki vita), ég fór nefnilega á CSS viskuleitarflakk og fann ýmislegt til að geyma og deila.
Næsta skref er að útfæra þetta blogg aðeins betur fyrir svona söfn.
á þessu flakki fékk ég þessa línu eftir Bubba á heilann.. skapar fegurðin hamingjuna.. ég er ekki frá því.
wow!
Ég held að Shaun Inman hafi búið til eitt fallegasta bloggið sem ég hef lengi séð. jawdropping eins og menn segja, og hægt að læra fullt af css trixum hjá þessum gaur.
keypt og selt
Hið stórmerkilega hefur gerst, sófanum okkar gamla ljóta - en þó góða - verður skipt út í sumar því nú höfum við pantað ítalskan eðalsófa með teikniáklæði sem litlu börnin í Kína geta farið að byrja að sauma saman. Gripurinn er væntanlegur eftir um það bil 12-15 vikur (frekar langur meðgöngutími finnst mér) og er nú síðasti sjens að koma og sitja hjá okkur í lörfunum.
Athugið! Nú er einstakt tækifæri að eignast sófa með sál, til sölu er sófasettið okkar, 3-2-1, einstaklega fallegt og vel með farið sett, selt hæstbjóðanda, tilboð óskast, afhending eftir 12-15 vikur.
heimskulegur dagur
Þá er afmælismánuðurinn hafinn. Apríl er gjörsamlega langbesti mánuðurinn, ekki bara að ég á fagna afmælisdegi mínum seinna í mánuðinum heldur er hann svo mikill bjartsýnismánuður, sumargírinn að hefjast, hægt að teygja sig í síðustu góðu dropana af vetrinum, fólk að skipuleggja sumarfríið og svona einhver von að glæðast.
En mánuðurinn byrjar ekki vel og þetta aprílgabb dæmi er orðið óskaplega þreytt.
Þegar ég var lítil fannst mér þetta rosalega spennandi, að það sé leyft að plata og ljúga þennan eina dag, að jafnvel fullorðið fólk stundi það að bulla einhverja vitleysu og reyni að láta aðra trúa sér. Svo þegar maður kemst til vits og ára sér maður að fullorðið fólk er sífellt að plata og ljúga nema þennan dag skrökvar það einhverju svo heimskulegu að það er ekki nokkur leið að trúa því.
Hvaða heilvita fólk mætti til dæmis niður á hafnarbakka kl 17 í dag til að eiga sjens á að vera í myndbandi með Coldplay? Eða fór í 11-11 til að ná sér í Góu páskaegg og gæti verið svo heppið að finna demantshring í? Eða fór í Þjóðmenningarhús kl 17 til að sjá Friðrik og Fischer tefla? Eða fær áfall og hjartastopp og harmakvein af því michael schumacher segist ætla að hætta í F1? (SÓ F***ING WHAT!).
Komiði nú með eitthvað gott stöff, fólk! Allra best væri ef Auðunn Georg mætti í vinnuna á morgun með 'fooled yah' glott á kinn. ÞAÐ væri fyndið.
Jæja Dagný
note to self: koma með nesti í vinnuna framvegis. Sveitti föstudagsborgarinn var slæææm hugmynd.
hugmyndaleg fátækt
Þegar menn eru með tvö fyrirtæki í sama plássinu, af hverju reyna menn ekki að hafa svolitla fjölbreyti í merkjagerðinni! case 1 - case 2
nammnammmmm
Mig langar að senda styrktar og samúðarkveðjur til mömmu minnar sem er í vinnunni í bankanum. "Tölvukerfið" ákvað að gera smá aprílgabb og hreinsa allt út af bankabókunum, hún er í því skilst mér að bakfæra og leiðrétta og svara í símann öllum þeim sem ætluðu að taka Kringlukastið snemma í morgun en uppgötva að kerfisdraugurinn er búinn að éta allt upp.
Strength to you, Mom!
8