me so huungry
Tíu Ellefu í götunni er undir major construction, búið að rífa allt út úr búðinni og ekkert nema spítur og steypa þar inni núna og enginn salatbar. Þetta verður mjög flott þegar allt er græjað, en ég er samt búin að vera að hugsa í allan morgun hvað ég eigi eiginlega að fá mér í hádegismat... eitthvað nálægt og ekki mjög dýrt. Subbuway kemur ekki til greina.
Annars er "kaffihúsið" hérna niðri að loka mjög fljótlega og þá finndist mér tilvalið að jói fel opni eins og eitt nett bakarí fyrir neðan. ég lifi í draumi, ég veit.
Deli kemur til greina, Sómaloka í einhverri sjoppunni, jafnvel Serrano handan við hornið, svo er reyndar ákaflega stutt í Hlölla. Ég sé út um gluggan að það er ekki löng röð... right
Flokkað sem matur. Þar eru 41 færslur.
/ Álit
10-11 er uppáhalds matsölustaðurinn minn, ég væri til í að fara með deit þangað í svona rómó út að borða hehe.
Sallatbarinn, samlokubarinn, heitaborðið, nýbakað brauð .... Öössss, það gerist bara ekki betra! :)
ps: Var ekki mannanafnaefnd að banna nafnið Daia? Þú gætir lent í jailinu fyrir að nota þetta hehe!
dæja:
össs.. hlusta nú ekkert á almannanafnanefnd...
fékk mér annars Deli í hádeginu, varð næstumþví úti af andmæði upp bankastrætið, en það var þess virði



RSS veita