fyrsti mars

Fyrsti vinnudagurinn að baki. Mjög góður dagur verð að segja. Ég hef ákveðið að taka strætó í vinnuna enda ekkert vit í öðru, væri annars 5 min að keyra og 20 min að finna stæði. Strætó er líka svo heimsborgaralegt og umhverfisvænt, ekki síst þegar maður fær splúnkunýjan vetnisvagn eins og í morgun. Bílstjórinn bauð mér meira að segja góðan dag og svínaði á enga sál á Melatorginu. Heimur bestnandi fer.
Fyrsta verkefnið var að fara á fund í Kópavog. Það var skemmtilegur fundur og áhugaverð verkefni í framhaldi af því. Ég saknaði litla stubbs auðvitað óskaplega mikið en merkilegt hvað tíminn getur liðið hratt án þess að maður sé endilega að pæla í því. Ég vissi að hann var í góðum höndum hjá pabba sínum enda þeir steinsofandi í fangi hvors annars þegar ég fór.
Þó ég hafi tekið ákvörðun þarna um daginn þá er ég ennþá alveg á báðum áttum. Kannski er þetta bara vitleysa og móðursýki og aðskilnaðarkvíði á háu stigi. Kannski er allt í lagi að vera eins árs hjá dagmömmu á daginn, sem kann að örva skilningarvitin hjá litlum kút og að deila dóti með jafnöldrum sínum. Koma svo heim og borða kvöldmat með mömmu og pabba sem eru búin að vera úti í hinum stóra heimi að auðga andann og styrkja framann. En svo er kannski nógur tími til þess seinna. Gvuð minn góður hvað þetta getur verið erfið ákvörðun, hún er gjörsamlega að slíta mig í sundur!
Til hamingju með bjórdaginn annars.


Þriðjudagur 01. mars 2005 kl. 21:52
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

kristjana:

hetja !!
guð mér kvíður svo fyrir að fara að vinna frá dúllunni minni að ég bara hugsa varla um neitt annað, ég byrja að vinna 21 mars, næstum 8 mánaða...skælskæl veit ekki alveg hvað ég er að spá. Langar helst til að halda á henni alveg þanngað til og láta hana svo bara úr fanginu rétt fyrir átta 21 mars:)

02.03.05 13:29


Bjarkey:

Hæ hæ. Jæja, það er gott að þetta var bara væg sýking hjá stráksa. Ég skil aðskilnaðarkvíða þinn vel, get varla hugsað mér að fara að kenna í haust og ef fjárhagurinn leyfði það þá væri ég heima. Mig hefur alla tíð langað að eyða fyrstu árum barna minna heima en á meðan störf heimavinnandi foreldra eru ekki launuð (peningalega, auðvitað eru það full "laun" að fá að vera með börnunum sínum), að þá er þetta bara ekki í boði fyrir fólk sem er rétt að drattast úr skóla og á atvinnumarkaðinn! Ég er ekkert fúl yfir þessu... nei nei ... he hemm.... :-/

02.03.05 13:52


dagný:

já, upphaflega ætlaði ég að byrja að vinna í janúar þegar Danni var 8 mánaða.. svo í nóvember sá ég að ég gæti það ekki, ég kveið í alvörunni fyrir jólunum af því strax eftir þau þyrfti ég að fara frá honum yfir daginn! Sem betur fer var ekkert mál að fresta endurkomunni í vinnuna þá, atvinnurekandinn minn er mjög skilningsrík, ég væri löngu búin að gefast upp á mér :S
Gangi þér vel Kristjana, þetta verður erfitt en það jafnast samt ekkert á við það að sjá hvað hún verður glöð að sjá þig þegar þú kemur heim :)

02.03.05 21:13


Hadda:

Myndi nú bara leyfa stráknum að fara á smá sjens með einhverjum öðrum stelpum en þér... Mikilvægt fyrir börn að læra að leika sér og vera í kringum jafnaldra sína.. .Skil kvíðann, en hann er sennilegast óþarfur:-)
Þannig að nú hefur annað sjónarhorn konu með reynslu:-/
Knús til Danna og Óla

02.03.05 21:25


dagný:

takk fyrir innleggið Hadda, jú sennilega er kvíðinn óþarfur, ég meina það eru öll önnur börn sem fara í dagvistun og verður ekki meint af. Ég er bara að hugsa um að þetta er svo langur tími fyrir lítinn strákað vera hjá dagmömmu frá 8-17, þó svo það sé væn kona og allt það þá er það allt annað en að vera heima hjá sér í sínu umhverfi. Auk þess sem börn fara ekki að "leika við" önnur börn fyrr en þau eru komin vel á annað ár.
Áhyggjurnar eru þær að ef ég fer í vinnu aftur þá fylgir því mikil yfirvinna og því finnst mér ég vera að missa af dýrmætum tíma hjá drengnum sem kemur ekki aftur. Draumurinn er að geta unnið fyrir hádegi og verið með stráknum eftir hádegi. Það er ekki hægt þar sem ég er að vinna núna, ef það á að gerast þarf ég að skipta um vinnu :/

02.03.05 21:39