döööööööööö

og meira ídíotískt af mér.. ég fór og náði í visa kortið mitt áðan út í banka, ég ákvað að henda farkortinu og sækja um svartakortið fyrir skömmu (..reyndar fyrir löngu). Ég mæti semsagt í sjóðinn, konan afhendir mér kortið og biður mig að skrifa á það. Ég geri nokkrar prufur (hita upp rithöndina og svonna..) og skrifa svo nafnið mitt á bakhlið kortsins.. á vitlausan stað!... ég hefði eyðilagt segulröndina á kortinu ef afgreiðslukonan hefði ekki hrópað upp yfir sig að ég væri að gera vitleysu, almáttugur ég held að það sé ekki alveg í lagi með mig.


Miðvikudagur 23. mars 2005 kl. 16:01
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

gunna:

I know... it's hard...

;)

23.03.05 18:05


mundi:

hahaha... en varstu að skrifa rétt nafn??? :)

24.03.05 12:56


gunna:

Nei nei, bara komin með nöfnu, phonetically allavegana ;)

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1131492

29.03.05 19:58


Freyja:

Samkvæmt þessari frétt má skíra barn "Gloría Estefan" sem er tær snilld.

29.03.05 20:15


dæja:

heyrðu vá, má maður í alvöru heita dæja! en ekki blær? ég veit um stelpu sem heitir Blær og finnst það mjög fallegt...

29.03.05 20:36


gunna:

ætli maður megi skíra Gunna?

ekki að ég myndi gera neinum það, finnst það ekkert sérlega fallegt. Svona frekar sveitó...

30.03.05 11:35