austurstræti, ys og læti

Ég er komin með fínt borð í vinnunni, með gluggaútsýni yfir Austurstrætið. Að vísu er búllan fyrir neðan ennþá í fullswing en það stendur víst til bóta, þeir eru víst að flytja á annan stað fljótlega og það verður fróðlegt að vita hvað kemur hérna fyrir neðan í staðin. Bakarí væri alveg idealt, ég veit ekki um neitt bakarí á milli berhöftsbakaríis og björnsbakarís á hringbrautinni. Eða ísbúð. Mmm.
Hvort tveggja væri reyndar einstaklega óheppilegt fyrir vaxtarlagið mitt. Hvað sem það verður, þá þarf það að vera eitthvað til að hressa upp á götuímyndina hérna megin strætisins. Hún er gjörsamlega í rúst, þó svo nokkur fallegustu hús borgarinnar séu hérna í götunni.
Og það er stöðugt streymi af bílum hérna niður, margir á rúntinum, svona Akureyrisstemmning.


Miðvikudagur 16. mars 2005 kl. 15:59
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

Tryggvi R. Jónsson:

Ætli einkabíllinn hafi ekki skemmt miðbæinn meira en flugvöllurinn ;) ?

16.03.05 16:15


Dagný:

jú, ætli það sé ekki blanda af þessu öllu saman.
Ég tek strætó í vinnuna núna og finnst það líka ágætis ferðamáti amk. snöggtum skárri ferðamáti en einkabíllinn. Öflugri strætó þýðir líka öflugri miðborg.
En Vatnsmýrin maður.. don't get me started.. Flugvöllurinn á að færa sig, ég er alveg á því. Og rífa þetta helv. mannvirkisflykki sem er að rísa í vatnsmýrinni, álíka stór hlussa og þessi flugvöllur. Eftir örfá ár verður vatnsmýrin algjörlega malbikuð.

16.03.05 17:00


Tryggvi R. Jónsson:

Hvaða mannvirki ertu að tala um ;) ? Ekki þó Sturlugötu 8 ;) ?

16.03.05 17:01