annar mars
Það er hættulegt að labba framhjá búðum á leiðinni í vinnuna. Í morgun sogaðist ég inn í Iðu í Lækjargötu eftir að sexan var búin að henda mér út. Ég var reyndar í leit að góðum penna, svona túss.. ég hata þessa kúlupenna, en fann síðan alveg dásamlega skissubók. Jedúddamía hvað hún er falleg. Ég er með ákveðið fetish gagnvart hönnunarbókum og fögrum skrifstofuvörum og hallelúja, ég verð aldrei söm. Og já, ég er geðveik.
Ég sogaðist líka inn í 10-11 og keypti núðlur sem ég borðaði í hádeginu og svoleiðis var dagurinn.
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur.
/ Álit
aslaug:
thegar eg var ad taka uppúr kössunum um daginn fattadi ég ad ég á 13 svartar skissubækur, í öllum mögulegum og ómögulegum formötum+ átta adrar skissubækur sem eru of fallegar til ad skissa í. svo ég skissa alltaf á manifold. en vid erum ad tala um í kringum 30 thusund kronur i skissubækur...
er du död?

