systratími

Baddý kíkti aðeins í heimsókn í dag. Hún er í borginni til að fagna útskrift kallsins síns úr lögfræðinni. Við fórum meðal annars í Kringluna seinnipartinn þar sem hún verslaði sér frekar flottan jakka á fínum prís. Ég þarf eiginlega að kaupa mér einhver föt um helgina fyrir vinnuna í næstu viku, get varla farið í teygðu óléttubolunum mínum eða pre-óléttu fötunum mínum sem eru gjörsamlega out-dated! Ó það væri gaman að finna eitthvað fallegt.


Fimmtudagur 24. febrúar 2005 kl. 22:03
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

kristjana:

hæ sæta mín,

Heyrðu mig langar svo geggjað mikið í tivoli útvarp, var að skoða í búð hérna og það kostar 17500 geggjað mikið finnst mér. Ég sá að þú hafðir keypt þér svona um daginn, og pantaðir þú það ekki að utan? Var að skoða þetta á netinu en er ekki alveg klár á þessu...hehe...tell me tell me:)

27.02.05 15:42


dagný:

Já, við keyptum model one týpuna hjá www.tivoliaudio.com fyrir jólin af því þessi týpa var uppseld á landinu takk fyrir. (Keyptum það fyrir jólagjafapeninginn frá vinnunni hans Óla) Við pöntuðum það í gegnum Shop USA og það kostaði rúmlega 15000 með sendingarkostnaði, tolli, vsk og svo þurftum við að kaupa annan straumbreyti því það var amerískur á þessum.
Óli græjaði þetta Shop USA dæmi, ég er ekki alveg klár á því hvernig það virkar, en ef þú veist um einhvern sem á leið í gegnum fríhöfnina þá kostar tækið um 14þús þar. Alveg þokkalega þess virði því það er massa hljómur í því! Svo er hægt að tengja t.d. mp3 spilara við það þá er maður kominn með nokkuð lekkert eldhúsútvarp sem maður getur DJast með. ;)

27.02.05 22:57