reykingabann

Vá hvað ég er hlynnt þessu reykingabanni. Það er bara engin spurning í mínum huga, reykingar eru ekki mannréttindi og það á ekki að vera undantekning hvar ekki er reykt heldur á það að vera undantekning hvar leyft er að reykja.
Fólk sem reykir tekur þessu bara allt of persónulega, eins og það sé verið að ráðast á einhvern kjarna persónuleika þess. Auðvitað er þetta fólk velkomið inn á alla reyklausa staði, svo lengi sem það kveikir sér ekki í á meðan. Það lætur bara eins og það geti aldrei skemmt sér framar!
Frjálshyggjuplebbarnir sem vilja fullkomið frelsi einstaklingsins til að stjórna sér sjálfur gleyma oftast aukasetningunni í sinni megin kenningu: "Fólk á að vera frjálst til að gera það sem það vill, svo lengi sem það skaðar ekki aðra". Þessi aukasetning er algjörlega lykilatriði!


Miðvikudagur 23. febrúar 2005 kl. 15:28
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

almar:

Jú, þetta er víst mannréttindarbrot að mínu mati :)
Þið getið bara haldið ykkur heima ef þið viljið ferskt loft hehe
Einsog Kristjana sagði svo vel þá eru reykingarilmurinn það eina sem nær að yfirgnæfa prumpulyktina á skemmtistöðunum. Svo ef það væru til bæði reyklausir skemmtistaðir og með reyk þá kæmi allt reyklausa fólkið á reykstaðina og myndi bara hósta þar og kvarta.
En annars er þetta bara rugl, auðvitað á að banna sígarettur yfir höfuð, þær gera engum gott.

24.02.05 00:22


gunna:

Mannréttindabrot segirðu?
OK... ef það eru mannréttindabrot að leyfa ekki reykingar, má ég þá ekki koma með eiturefnaflöskurnar úr vinnunni inn á kaffishúsin, sulla vandlega úr þeim og leyfa þeim sem nálægt mér eru að njóta, ekki bara ólyktarinnar, heldur líka krabbameinsvaldandi eiturgufanna með mér? Ansi hrædd um að það myndi heyrast eitthvað í þér þá ;)

24.02.05 11:20


dagný:

tja, frekar myndi ég vilja prumpulykt heldur en reykingarfýluna.. prumpan er allavega lífræn! Lífrænt er inn í dag ;)

24.02.05 12:17


almar:

En þá gætum við alvegeins farið að banna bíla, því ekki er menguni frá þeim minni og heilsusamlegri og þið hikið ekki við að spúa þeim eiturgufum útí andrúmsloftið ha? hehe

24.02.05 15:44


dagný:

Það er ekki eins og maður standi ofan í púströrinu hjá náunganum en jú vissulega er það rétt að bílarnir menga mikið. Það er ferlegt að hugsa til þess. Mér finnst það alveg ömurlegt að hafa ekki val með það nota aflgjafa sem mengar minna en bensín og olía.
Ég er líka viss um það Almar að ef þú þyrftir að velja um það að hætta að reykja eða hætta að nota bílinn og labba eða hjóla út um allt þá myndirðu nauðugur sleppa sígóinni og nota bílinn.
Nei, on second thought, þú myndir sitja heima alla daga og strompa. Bad example ;)

24.02.05 21:16


gunna:

HAHA!
Almar, þetta er svo yndislega dæmigert "comaback" frá nikótínista! ;)

Jú, bílarnir menga alltof mikið - vonandi verða vetnisbílarnir komnir í gagnið fljótlega, eða sólarorkubílar, já eða hugarorkubílar. Svo ættum við öll að hugsa meira um "Móðurina" og nota hjólin og fæturna á okkur líka í styttri ferðir.

En já, málið með bílana er samt er að þeir eru nytjahlutir, við þurfum að komast á milli staða. Sígarettur eru bara pjúra eitur...

:)

25.02.05 11:11


freyja:

hahahahahaha, ég hlakka mikið til að fá að nota hugarorkubíla, snilldarhugmynd það Guðrún.
Sko, ég held að ég færi örugglega oftar á kaffihús ef þau væru reyklaus. Það er ömurlegt að koma heim af kaffihúsi og anga eins og stútfullur öskubakki. Lyktin festist í hárinu og fötunum og öllu, oj bjakk, ég fæ svo alltof auðveldlega hausverk (mikil lykt er erfið, ilmvatn, reykingar, hreinsilögur (nota það sem afsökun) og allt svona "sterkt"), það er eitt reyklaust kaffihús hér og það er magnað, en gallinn er að það er ekkert opið á kvöldin um helgar.....ef maður vill sósjalæsa þá verður maður að ganga inn í reykmökkinn.
En ég hlakka mikið til að fá að nota hugarorkubíla sem fyr segir, spurning hvort maður komist nokkuð langt á þeim??

27.02.05 15:54


dagný:

já vá, ég kæmist ekki mjög langt á hugarorkubíl, allavega ekki ef ég væri orkuveitan.. púff*
en ég er sammála með kaffihúsin og reykinn, maður fær bókað hangover eftir svoleiðis kvöld, jafnvel þó maður hafi ekkert drukkið. Kvöldin yrðu fleiri og betri ef enginn reykurinn væri þannig að alþingi GO FOR IT, þjóðin hefur mjög gott af þessu banni. Stundum er forræðishyggjan bara nauðsynleg!

27.02.05 22:49