Davinci code
Ég hef verið að lesa Davinci lykilinn og gvuð minn góður, af hverju er ég ekki búin að lesa þessa bók fyrr?? Hvílík og önnur ein snilld! Ég er gjörsamlega á nálum, gleymi tímanum og æði áfram, blaðsíðu eftir blaðsíðu og þori svo ekki að fara að sofa því ég býst við að albínóinn stökkvi á mig úr horninu. Ég er auðvitað búin að fletta listaverkabókunum mínum, skoða Síðustu kvöldmáltíðina og haaallilúja.. Ég kaupi allar þessar kenningar. Slegið!
Flokkað sem bækur. Þar eru 19 færslur.
/ Álit
já sannarlega ein skemmtilegasta lesning sem maður getur fundið. ekki skemmdi fyrir að skella sér í Louvre helgina eftir lesturinn og skoða vettvang glæpsins...
Síðan má líka mæla með Angels&Demons, Deception Point og Digital Fortress eftir sama höfund. Sumum finnst þær reyndar minna áhugaverðar en það fer væntanlega eftir áhugasviði hvers og eins.
Ég skal samt alveg viðurkenna að formúlan hans er orðin frekar þreytt í bók nr 3 og 4 sem maður les ;)
Já, það var mjög fróðlegt að hafa komið í Louvre á sínum tíma þannig að vettvangurinn var ljóslifandi í huganum. Spurning hvernig bíómyndin sýnir þetta.
Næst langar mig svolítið að lesa Belladonna skjalið og hef vonandi góðan tíma í það ef áætlanir heimilisins ganga upp.
freyja:
Já, DaVinci Code hélt mér alveg... mamma sagðist nú bara hafa hrært í pottunum með annarri og verið með bókina í hinni.
Ég hef reyndar heyrt að Belladonna skjalið sé betur skrifuð, eða sé allavega betri saga, en aumingja greyið tapar á því að hafa komið út hérna á eftir Da Vinci Code, ég á eftir að lesa Belladonna til að vera dómbær á það sjálf, það gerist kannski um páskana, þegar námsbækurnar fá að sitja kyrrar :)

