uppeldið

Heimilið er búið að vera frekar mikið á hvolfi síðustu daga. Lítill gutti er búinn að gubba mikið, borða lítið, sofa mikið og sofa lítið, hósta mikið og bara allskonar ástand og reynir eins og hann getur að koma skilaboðum á framfæri til þeirra sem eru að reyna að ráða í tungumálið hans. Dagurinn í dag var þó boð um betri tíma en ennþá leggjum við ekki alveg í að fara út úr húsi. Það á líka að vera mjög kalt á morgun.
Þátturinn um Supernanny fyrir nokkru vakti mikla lukku á heimilinu (þó svo við kaupum ekki stöð2 heldur fáum bara hljóðið svo pointið kemst nokkurn vegin til skila), svo mikla að það var farið beint á netið og aflað sér upplýsinga um þessa fróðu konu. Við komumst að því að hún gaf út bók í janúar sem heitir einfaldlega Supernanny og hún var pöntuð inn á heimilið med det samme og kom einmitt á föstudagskvöldið. Ákaflega fróðleg lesning og mjög áhugaverð að því leyti að þetta er allt saman common sense. Svo er þetta líka mjög falleg bók, sem skiptir ekki minna máli.

Sunnudagur 27. febrúar 2005 kl. 23:19 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem uppeldi / 4

systratími

Baddý kíkti aðeins í heimsókn í dag. Hún er í borginni til að fagna útskrift kallsins síns úr lögfræðinni. Við fórum meðal annars í Kringluna seinnipartinn þar sem hún verslaði sér frekar flottan jakka á fínum prís. Ég þarf eiginlega að kaupa mér einhver föt um helgina fyrir vinnuna í næstu viku, get varla farið í teygðu óléttubolunum mínum eða pre-óléttu fötunum mínum sem eru gjörsamlega out-dated! Ó það væri gaman að finna eitthvað fallegt.

Fimmtudagur 24. febrúar 2005 kl. 22:03 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

jahérna hér

Í súkkulaðikexinu Elitesse sem ég var að borða er eitt af innihaldinu "hreinsuð repjuolía!" Hvað í fjáranum er Repjuolía?? ég vil ekki vita það reyndar, hljómar eins og eitthvað miður geðslegt. Huggun í harmi kannski að hún er "hreinsuð!"
*huhuughhh..*

Fimmtudagur 24. febrúar 2005 kl. 21:37 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem matur / 2

reykingabann

Vá hvað ég er hlynnt þessu reykingabanni. Það er bara engin spurning í mínum huga, reykingar eru ekki mannréttindi og það á ekki að vera undantekning hvar ekki er reykt heldur á það að vera undantekning hvar leyft er að reykja.
Fólk sem reykir tekur þessu bara allt of persónulega, eins og það sé verið að ráðast á einhvern kjarna persónuleika þess. Auðvitað er þetta fólk velkomið inn á alla reyklausa staði, svo lengi sem það kveikir sér ekki í á meðan. Það lætur bara eins og það geti aldrei skemmt sér framar!
Frjálshyggjuplebbarnir sem vilja fullkomið frelsi einstaklingsins til að stjórna sér sjálfur gleyma oftast aukasetningunni í sinni megin kenningu: "Fólk á að vera frjálst til að gera það sem það vill, svo lengi sem það skaðar ekki aðra". Þessi aukasetning er algjörlega lykilatriði!

Miðvikudagur 23. febrúar 2005 kl. 15:28 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 8

hugmyndir úr elle

Stóðst ekki mátið og greip breska Elle Decoration úr hillunni í Hagkaup í dag. Flott blað. Eftir að hafa flett því í dag er ég búin að ákveða hvernig ég ætla að flísaleggja baðherbergið (eða hvernig ég legg til að það verði flísalagt) ;) Ekki slæmt að vera búin að ákveða það. Það verður reyndar ekki lagt í það fyrr en skiptiborðið er farið út og almennileg hurð komin í dyrnar. Sem verður ég veit ekki hvenær. En samt alltaf gott að vera komin með nokkuð mótaðar hugmyndir.
Já, pælingin er semsagt að hafa ljósar, ekki mjög kremaðar mósaíkflísar á veggjunum og milli vasks og speglaskáps ættu að vera örlítið dekkri í sama tón og sú rönd á að ná alveg út að sturtuklefanum. Æji þú verður bara að sjá þegar þetta er komið.

Þriðjudagur 22. febrúar 2005 kl. 22:03 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið

úbs..

Ég var að fatta það að mars byrjar eftir viku... sem þýðir að ég byrja að vinna eftir viku.... and I have nothing to wear!!

Þriðjudagur 22. febrúar 2005 kl. 18:13 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

planið

Í dag er litli snáðinn okkar 10 mánaða. Tíminn gjörsamlega flýgur frá okkur hérna, hann er farinn að gera alls kyns trix og lífið í raun bara rétt að byrja.
Ég er búin að ákveða að vera með honum í sumar. Það er alveg nauðsynlegt að gefa honum tíma á meðan hann er að fóta sig. Ég verð í gömlu vinnunni minni í mars og apríl á meðan Óli tekur sitt feðraorlof (sem er bráðnauðsynlegt) en svo ætla ég hugsanlega að svipast um eftir starfi fyrir hádegi og leyfa Danna að leika við jafnaldra hjá dagmömmu (sem er ekki fundin ennþá) á meðan. Því miður er hlutastarf ekki í boði í vinnunni minni heldur veit ég að það er svo mikið að gera að það er unnið langt fram á kvöld. Sem er alveg dásamlegt fyrir vinnustaðinn því þetta er frábært fólk þarna og frábært að svona mikið af verkefnum séu í gangi. En á meðan lítill snáði situr heima þá get ég bara ekki unnið fram á kvöld, sama hversu áhugaverð verkefnin eru. Þannig er það bara.
Ég er búin að sækja um á tveimur stöðum um hlutastarf og það er spurning hvað kemur út úr því. Annars er ég sátt við að hugsa um soninn og heimilið í sumar, haust og vetur. Ef fjárhagurinn leyfir það.

Þriðjudagur 22. febrúar 2005 kl. 15:40 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem uppeldi / 2

breytingar

Ég iða í skinninu mig langar svo að fara að útbúa barnaherbergi handa Danna, svona eitthvað í þessa eða þessa áttina. Hann sofnar á kvöldin um átta leytið og sefur alveg staight til sjö á morgnana og kúrir svo til níu en þá bókstaflega sparkar hann mér á fætur. Það er því mjög hentugt að hafa hann áfram inni í herbergi hjá okkur. Ég er að reyna að útbúa kósí horn handa honum og er núna að hugsa um að mála einn renning á vegginn fyrir ofan rúmið hans og hafa hann hvítan (herbergið sjálft er hvítt en með smá grænum tón svo það myndi sjást munur). Ég er svolítið veik fyrir ljósbláum og brúnum lit saman, það virðist vera voða vinsælt í fatnaði hjá svona litlum strákum núna. Þannig væri í raun gaman að mála allan vegginn ljósbláan og hafa svo hvíta rönd fyrir ofan rúmið hans. Svo er líka spurning hvenær vinnuherberginu verður fórnað fyrir barnaherbergi. Þetta er óneitanlega þægilegt að geta haft tvö skrifborð plús gestarúm, skáp og bókahillu en þegar stofan verður á floti í dóti þá væntanlega fær prinsinn herbergið sitt, eða amk einhvern hluta af því.
En well.. best að sofa á þessu.

Laugardagur 19. febrúar 2005 kl. 01:28 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið

hvað er málið með haglél dauðans??

Fimmtudagur 17. febrúar 2005 kl. 15:12 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

enn af húsverkum

Þvottavélin mín tekur sennilega um sex kíló af þvotti, segjum fimm.. sinnum 5 vélar það þýðir 25 kíló af þvotti sem bíður þess að vera brotinn saman. Almáttugur. Draumurinn er að hafa sitt eigið þvottahús, þó svo sameignar þvottahúsið sé afburða gott þá er ekkert sem slær það út að vera með þvottahús inni hjá sér.
Danni sefur úti í vagni, svolítið kvefaður greyið og ekki með mikla matarlyst. Þrátt fyrir að hafa ákveðið að hafa engar áhyggjur af þyngdinni hans þá verður samt fróðlegt að fara með hann í 10 mánaða skoðun í næstu viku. Hann er örugglega ekki orðinn 8.5 kíló en er samt mjög sterkur og bústinn. Æji það er óþarfi að velta þessu fyrir sér, er ekki alltaf verið að kvarta yfir því að öll börn séu að verða svo feit.
Já, svona er þetta. Í kvöld ætla ég að prófa að gera grænmetislasagne úr Gestgjafanum, afburða hollt og gott, líka fyrir litla kvefaða stubba.

Fimmtudagur 17. febrúar 2005 kl. 14:25 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið

húsmóðirin

Fimm þvottavélar á tveimur dögum... hvað er hægt að eiga mikið af fötum??

Miðvikudagur 16. febrúar 2005 kl. 17:13 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / 1

helgin góða

Helgin var algjört dúndur, bráðsniðugt að fljúga svona norður og láta dekra við sig, láta bjóða sér í leikhús og út að borða og í hin ýmsu ferðalög. Dásemd alveg hreint.
Við Danni vorum reyndar næstum búin að missa af flugvélinni en pabbi vakti okkur eitthvað rétt eftir ellefu þar sem við kúrðum að vanda uppi í rúmi, brottförin af norðurlandinu var eftir klukkutíma og þá átti eftir að gefa barninu aðeins í gogginn, pakka öllu dótinu sem var á víð og dreif og keyra í hálftíma. Það hafðist, nema að ég er alltaf að uppgötva það sem ég hef gleymt.. bókin og kisan hans Danna og svo plokkarinn minn.. ég finn hvernig hárin spretta af ógnarhraða við augabrúnirnar mínar og ég fæ ekkert við ráðið. Ætli ég verði ekki að redda fari fyrir hann eða fá mér nýjan í apó áður en augun á mér verða komin á kaf.


Hvað á ég annars að hafa í kvöldmatinn? Ekki verður það ÖND! ;)

Þriðjudagur 15. febrúar 2005 kl. 14:10 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

þetta helsta

Dagurinn er búinn að vera furðulegur. Danni er sennilega að ná sér í einhverja pest, drengurinn sem verður aldrei veikur. Hann er því búinn að sofa inni í dag í nokkrum stuttum lúrum. Einhvernvegin verður ekkert úr deginum þegar litli snáðinn er svona.
Í fyrramálið ætlar pabbi hans að vera hjá honum því ég var plötuð til að kíkja aðeins upp í LHÍ á nokkra krakka sem eru að gera vefi þar og gefa þeim einhver tips.
Talandi um vefi þá er nýja útlitið hennar Láru komið upp á vefinn hennar sem er ágætlega heppnað að mér finnst. Svo erum við að fara að opna loremipsum.is í lok vikunnar þegar hönnunarverðlaun FÍT verða afhent, þá verð ég reyndar komin norður í ferska loftið.

Þriðjudagur 08. febrúar 2005 kl. 22:43 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

Pizza a la chef

Kvöldmaturinn þennan ágæta dag var frá Eldsmiðjunni þar sem við létum kokkinn ráða álegginu og útkoman var heldur betur ekki ónýt: pepperoni, sólþurrkaðir tómatar, sveppir, rjómaostur, ólívur, parmesan ostur og krydd. Ójá.

Mánudagur 07. febrúar 2005 kl. 20:47 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem matur / 1

átta ár

Tíminn flýgur. Þennan dag árið 1997 pikkaði ég Óla upp og hann hefur ekki sloppið síðan. Hann hefur reyndar alltaf haldið því fram að hann hafi pikkað mig upp, en það væri sögufölsun að halda því fram hér ;)
Allavega, hver dagur hefur verið öðrum betri síðan.
Mig grunar að hann ætli að færa mér eins og eina rjómabollu í tilefni dagsins ;)

Mánudagur 07. febrúar 2005 kl. 17:36 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

Gamla settið

Það er spurning um að henda gamla settinu út svo nýtt sett komi fyrr inn. Þá er ég að tala um sófasettið sem er búið að fylgja okkur í nokkur ár og er orðið freekar lamað. Við erum búin að skoða á helstu stöðum en helgin verður notuð í að skoða fleiri sófasett, einhvernvegin vantar samt þetta spark í afturendann (eins og gauðrifinn sweaty sófi sé ekki nógu mikið motivation!).
Það er nefnilega úr vöndu að velja, við viljum áklæði en eitthvað sem er barnvænt og "leggst" ekki (a.k.a rússkins líki sem hægt er að teikna í). Auk þess á sófinn að vera hæfilega mjúkur, stílhreinn og dökk grár, svona sirka #666. ;) Þetta sófasett virðist ekki vera til. Natuzzi er náttúrlega dásamleg búð og það næsta sem við höfum komist draumnum, en þeir sófar eru svo fagrir að þeir henta varla sem sjónvarpssófar eins og við leitum að heldur frekar sófi í fínu stofuna, hvenær sem við eignumst hana.
En leitin mun halda áfram.

Föstudagur 04. febrúar 2005 kl. 18:27 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / 1

Davinci code

Ég hef verið að lesa Davinci lykilinn og gvuð minn góður, af hverju er ég ekki búin að lesa þessa bók fyrr?? Hvílík og önnur ein snilld! Ég er gjörsamlega á nálum, gleymi tímanum og æði áfram, blaðsíðu eftir blaðsíðu og þori svo ekki að fara að sofa því ég býst við að albínóinn stökkvi á mig úr horninu. Ég er auðvitað búin að fletta listaverkabókunum mínum, skoða Síðustu kvöldmáltíðina og haaallilúja.. Ég kaupi allar þessar kenningar. Slegið!

Miðvikudagur 02. febrúar 2005 kl. 00:28 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem bækur / 4

Þungt hugsi

Undanfarið hefur mikið verið fjallað um stöðu fjölskyldunnar á Íslandi í fjölmiðlum, þá sérstaklega í samhengi við ávörpin sem voru flutt um síðustu áramót. Við vinnum of mikið í þessu landi og höfum engan tíma fyrir börnin, börnin fara of ung í leikskóla og eru þar of lengi yfir daginn, allt til þess að halda í standardinn. Forgangsröðunin er samt undarleg.
Ég hef verið mjög þungt hugsi síðustu daga yfir þessu, sérstaklega þar sem fæðingarorlofið mitt er búið og ég hef verið að svipast um eftir dagmóður sem sonur minn þarf á að halda þegar hann verður ársgamall. Er hægt að vera móðir bara á kvöldin og um helgar? Þetta virðist samt sem áður vera það sem gildir í dag. Jafnréttisbaráttan, eins nauðsynleg sem hún er, hefur leitt til þeirrar hugsunar að ef kona er lengur heima hjá barninu sínu en þessa 6 mánuði sem fæðingarorlofið nær, þá er hún annaðhvort atvinnu/metnaðarlaus eða undirlægja afturhaldssams eiginmanns sem vill halda í gömlu verkaskiptinguna. Hvorugt á við um mig.
Ég er í frábæru starfi þar sem ég fæ að blómstra, í raun í draumastarfinu þó svo launin mættu vera betri. Ég á yndislegan mann sem sér alveg jafnt, ef ekki meira, um húsverkin og ég. Hins vegar er þessi tími sem strákurinn er svona lítill; að byrja að læra að borða, að færa sig úr stað og svo að tala, svo óskaplega stuttur og dýrmætur að ég mun pottþétt alltaf sjá eftir því ef ég er ekki með honum. Fjárhagslega gengur það upp og fyrir strákinn væri það óendanlega dýrmætt en ákvörðunin er samt ótrúlega erfið.

Þriðjudagur 01. febrúar 2005 kl. 23:29 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 5