teljari
Vill einhver plís segja mér hvað stendur þarna við reykjalin.com ?
Ég var að setja nýjan teljara á vefina mína þar sem reinvigorate teljarinn sæti er eitthvað þreyttur. Skemmst frá því að segja er þessi nýji teljari alveg að brillera á heimilinu. Með honum get ég séð hvað hver er að skoða, hvenær, hvaðan og hvert hann fer. og ótrúlegt en satt er reykjalin.com síðan, sem hefur ekki breyst í háa herrans tíð en stendur til bóta, að fá mun fleiri hits en síða sonarins sem þó er hvað mest lifandi. -og ég kvarta ekki undan heimsóknum á þann vef.
Flokkað sem netið. Þar eru 107 færslur.
/ Álit
Já það er greinilega orðið nauðsynlegt að drífa sig á kínverskunámskeið (eða japönskunámskeið eða hvaða tungumál þetta er nú eiginlega). Ég kann samt smá í öllum þessum tungumálum og út frá því litla sem ég kann sýnist mér að þarna standi: "Mjög
áhugaverð síða. Endilega kíkið á þetta!"
vá Svanhildur, þú ert snillingur! ;)

