sunnudagsmaturinn

Ég ætlaði alltaf einusinni að vera rosa dugleg við að pósta kvöldmatsuppskriftunum hingað inn því stundum vantar manni alveg ferlega hugmyndir að kvöldmat. En einhvernvegin hefur þetta farið fyrir ofan garð og neðan. Í kvöld var bara dósar tikkamasala kjúklingur með grjónum, gott en mjög hversdags. Í gær hins vegar önd í matinn, (átak í að losa um pláss í frystinum fyrir næstu veiðivertíð) mikið rosalega var sú önd góð. Svona var hún elduð...


Þessi toppönd var frekar lítil en dugði vel ofan í okkur bæði, hún var hamflett, krydduð með salti og pipar og fersku timjan (blóðbergi reyndar). Einnig settum við nokkur blóðbergsstrá inn í hana. Svo var hún heilsteikt á pönnunni í smástund og fór loks inn í ofn í korter eða svo.
Með þessu gerði ég skallotlauks-kartöfluréttinn eðalgóða sem er svona: ca 12 kartöflur skrælaðar og skornar í skífur, ekki of þunnar. 2-3 skallotlaukar skornir niður og steiktir á pönnu uppúr smjöri. Kartöflunum bætt þar við. Á meðan er soðið vatn (2dl -má vera meira) og einum lambateningi bætt útí. Skallotkartöflurnar settar í eldfast fat og lambasoðinu hellt útá. Einnig má setja hvítvín út á þetta en ég hef reyndar aldrei gert það. Að lokum er svolítið af ferskri steinselju stráð yfir og fatið sett í ofn í um 30-40 min.
Þessi kartöfluréttur klikkar ekki með góðri steik. Hann er úr uppskriftabók Nýkaups sem fæst enn í Hagkaup og ég mæli með, held að ég sé búin að elda flest allt upp úr þeirri bók.
Annað meðlæti með öndinni var ferskt grískt salat (ruccola, tómatar og mozzarella) og hunangssteikt grænmeti.. það sem var til: sveppir, gulrætur, blaðlaukur og svo ein matskeið af hunangi sett á pönnuna.. mjöög djúsí með svona villibráð.

Öndin fékk alveg fullt hús stiga!

Mánudagur 31. janúar 2005 kl. 22:15
Flokkað sem matur. Þar eru 41 færslur.

/ Álit

hanna sys:

Blessuð - ég er nú alveg til í eins og eitt stykki önd í matinn einhverntíman, svona ef að frystirinn fyllist eftir komandi veiðiferð! ;) bara svona hugmynd! hehe

01.02.05 21:18


dagný:

skal hafa þig í huga ;)

02.02.05 13:37