píslið mitt
Ég fór með soninn í vigtun í dag, hann virðist vera að erfa stærð foreldra sinna þar sem hann er að sveigja niður af meðalkúrfunni. Hann verður 9 mánaða á laugardaginn en hefur ekki náð 8kg þyngd ennþá. -Sem handleggurinn á mér þakkar reyndar fyrir. Hann borðar hins vegar þar til hann stendur á blístri og ber engin merki um að vera eitthvað veiklulegur, aldrei orðið lasinn, fengið hita eða neina gubbupest að ráði. Næsta mánuðinn fær hann hins vegar smjör, rjóma eða olíu út á allan sinn mat, heitan mat tvisvar á dag, svona til að friða heilsugæslufólkið.
Ég get ekki skilið það hvernig heimskt fólk fer að því að ala upp börn, það er ekkert smáræði sem maður þarf að vita, skilja og gera á hinum ólíkustu sviðum í uppeldinu. Kannski er ég bara einum of skipulögð og þarf að slaka aðeins á.
Flokkað sem uppeldi. Þar eru 47 færslur.
/ Álit
Ég hugsa að ég muni nú samt, í framtíðinni, líta upp til litla frænda - í tvöfaldri merkingu! :D
aawww sweet Hanna! :p
spáðu samt í gelluni sem eignaðist 32 marka barn, það var í fréttunum um daginn....er það ekki um 8 kg, bara eins og danni er núna??!!!
jú, býst við því.. það er rosalegt!

