heit
Áramótaheitið hjá mér er að hluta kennt við neyslu eins og hjá mörgum öðrum. Þeir sem strengja svona heit á annað borð heita því að verða betri á eftir og lang flestir ætla því að hætta einhverjum ósið. Ég veit að ég á ekki sjens í að hætta að borða súkkulaði þannig að ég ætla ekki einusinni að fara þangað. Hins vegar ætla ég að reyna á það að hætta að drekka gos, núna er komin vika og það er auðvitað ekkert mál.. segi ég ennþá. Hitt kemur svo seinna.. vonandi.. kannski
En svo er eitt grafískt áramótaheit. Ég var nefnilega að fatta að ég er ekki búin að gera bobs svona hönnunarlega séð á síðasta ári. Ekkert sem ég get státað mig af enda verið upptekin við önnur yndisleg verkefni. Þetta fattaði ég þegar Raggó fór að auglýsa eftir efni í Icelandic Visual Culture 2004 En núna, samhliða uppeldinu, ætla ég að reyna að gera eitthvað merkilegt og skemmtilegt svona grafískt séð að minnsta kosti eitt verkefni í hverjum mánuði. Þá mun ég vonandi eiga 12 verk sem ég get sýnt með stolti á sama tíma á næsta ári. Það væri fjör.
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur. / lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
gunna:
Það eru flott og raunsæ áramotaheit. Sama hér með hönnunina... ekkert gert af viti. Synd og skömm.
Til hamingju með kóklausa viku -- held að fyrsta vikan í "afkókun" er erfiðust, so it´s only going to get easier :)
já, þetta er miklu auðveldara en ég hélt, ef maður er staddur í búðinni og langar að kaupa sér gos... þá fer ég yfirleitt bara og kaupi lime, sítrónu, ferska mintu, jarðaber eða eitthvað til að setja út í kalt vatn og vollla.. miklu betra en gos.
Vonandi að hönnunarheitið gangi jafn vel.

