the end of the world as we know it..

Einhversstaðar heyrði ég að versti dagur ársins hefði verið í gær. Ekki var ég vör við það, þetta var ágætis dagur. Þegar ég náði í blaðið í morgun var mér sagt á fyrstu síðu að allt myndi fara til andskotans hérna ef staðan væri óbreytt eftir tíu ár.. a.k.a. Global warming. Minni grein hefur hreyft við mér. Á næstu opnu var stór auglýsing um ódýrt bensín. Great. Mitt framlag til að viðhalda status quo.
Ef það eru einhverjir í heiminum sem eiga að hætta að nota bensín þá eru það Íslendingar. Ég þoli ekki þessa gengdarlausu bensíneyðslu. Gremja út í olíufélögin hefur kannski sitt að segja í því. Við höfum reyndar náð að versla eingöngu við Atlantsolíu eftir að olíufélagaskandallinn kom upp, utan við eitt skipti þegar við vorum á Dalvík og í dag þurfti ég að kaupa nýjar rúðuþurrkur og lét starfsmann Esso þræla út í að skipta um fyrir mig.
Ég skil ekki af hverju það er ekki meiri umræða um vetnisbílavæðingu í þessari gremju, kannski er enginn eins langrækinn og ég. Ég er þó viss um að ef vetnisbíll er raunhæfur valkostur þá mun almenningur taka hann framyfir bensínbílinn. Útópían er náttúrulega að hafa góðar almenningssamgöngur í borginni (virðist ekki ætla að rætast), eiga smábíl í borgarsnattið, taka vetnislestina norður í land og njóta þess að horfa á ósnortið landslagið yfir Kjöl á leiðinni.
Miðað við hvað tíminn hefur liðið hratt undanfarið þá eru tíu ár sem og á morgun og spurningin er þá annaðhvort að gera eitthvað eða að byrja að pakka.


Þriðjudagur 25. janúar 2005 kl. 17:20
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

batgirl:

er málið ekki bara að þessir stóru olíufurstar þagga niður allt vetnistal, en afhverju heyrir maður engar fréttir af vetnis-strætóvögnunum sem eru í borginni, er ekki hægt að koma með fleiri svona sérstaklega ef engar fréttir eru góðar fréttir!!

28.01.05 17:20