eilítil hönnunarkrítík
Ég elska fallegar uppskriftabækur. Þær sameina þrennt sem ég hef mikinn áhuga á; matur, fallegar ljósmyndir og fallegt og vel upp sett letur. Þegar maður hefur auga og bragðlauka í þetta þá á það ekki að geta klikkað. Tímarit eru ennþá dásamlegri þegar þau heppnast vel, draumadjobbið væri í raun að setja saman röð tímarita sem fjalla um mat. MMMmmm já.
Það er eitt, að ég best veit, tímarit á Íslandi sem fjallar um mat og það er Gestgjafinn. Ég kaupi yfirleitt eitt tölublað af því á ári, Kökublaðið fyrir jólin. Ég reyndar keypti líka nýja blaðið þegar ég fór í Hagkaup áðan af því þar fylgja með 100 bestu uppskriftir síðasta árs. Ógeðslega praktískt. Fleiri tölublöð hef ég ekki keypt af því einfaldlega að mér finnst það svo ótrúlega ljótt blað. Það var líka ástæðan fyrir því að ég tók ekki alveg ótrúlega hagstæðu og girnilegu áskriftartilboði síðasta haust, ég þurfti að berjast á móti því þegar sölukonan hringdi. Ég get ekki verið áskrifandi að svona ljótu blaði. Ég veit ég er hóra.
En jæja, það er komið nýtt útlit á Gestgjafann. Þó þetta sé mun flottara þá er samt svo sorglegt að skrefið sé ekki stigið til fulls. Það er reynt að updeita útlitið með því að leita í brunna annarra flottra tímarita, t.d. er bls 28 alveg ótrúlega Wallpaper* leg, en það vantar algjörlega að finna því sérstöðu eða einhver séreinkenni.
Fótaletrið er skemmtilegra í þessari nýju útgáfu og steinskriftinni algjörlega ofaukið.
Þetta er samt ekki alslæmt. Bls 43-44-45 eru flottar, ég rak í rogastans. Þar er um að ræða tvær uppskriftir af fiskréttum á bls. 43. Opnan þar á eftir, bls. 44 og 45 , eru myndir af fiskréttunum, risastórar með sína hvora síðuna og "uppfyllingartexta" fyrir neðan. Mjög skemmtileg útfærsla og það væri gaman að sjá meira svona twist.
Flokkað sem heimilið. Þar eru 66 færslur. / hönnun. Þar eru 162 færslur. / matur. Þar eru 43 færslur.
/ Álit
gunna:
ok. ég er að fara blog-rúntinn og sorrý hvað ég er að kommenta mikið hjá þér en... here goes;
Skil hvað þú átt við. Ég væri rosaleg mikið til í sérhæfðara hönnunarstarf en flest það sem er í boði hérna. Væri alveg MEIRA en til í að setja um matarbækur og tímarit. Og, húsgagna, og skartgripa. En það sem gerir þetta enn erfiðara er að ég myndi vilja hafa alla þessa gripi að mínu skapi! Ég yrði að vilja þennan sófa, eða þennan hring... já. maður gerir kröfur...
já, það er víst ekkert stuð að setja upp flott blað með ljótu innihaldi.. einhvernvegin sér maður þetta fyrir sér eins og húsgögnin séu öll úr natuzzi þegar maður hugsar sér að setja upp húsgagnablað... eða matarbók með slátur uppskrifturm.. haha!
kommentaðu að vild gæzkan, ég hef bara gaman að því

