dagmömmumál
Það er naumast að veðrið er búið að vera ljúft síðustu daga. Við Danni röltum til einnar dagmömmu í hverfinu í gær í góða veðrinu og ég er svona eiginlega enn í svolitlu sjokki. Konan var ákaflega ljúf og góð en aðstæðurnar sem hún var með voru hrikalegar. Kannski er ég svona góðu vön eða kröfuhörð en mér er nú samt ekki alveg sama hvar barnið mitt dvelur á daginn.
Það er aðeins verið að melta komandi mánuði hérna á heimilinu, hvað til bragðs skal taka. Það er ekki um auðugan garð að gresja með dagmömmur og spurningin er hreinlega hvort maður vill eyða helmingnum af laununum sínum í að borga einhverjum út í bæ fyrir að annast barnið sitt, sem maður vildi helst af öllu gera sjálfur.
Fimmtudagur 27. janúar 2005 kl. 17:06
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

