sunnudagsmaturinn
Ég ætlaði alltaf einusinni að vera rosa dugleg við að pósta kvöldmatsuppskriftunum hingað inn því stundum vantar manni alveg ferlega hugmyndir að kvöldmat. En einhvernvegin hefur þetta farið fyrir ofan garð og neðan. Í kvöld var bara dósar tikkamasala kjúklingur með grjónum, gott en mjög hversdags. Í gær hins vegar önd í matinn, (átak í að losa um pláss í frystinum fyrir næstu veiðivertíð) mikið rosalega var sú önd góð. Svona var hún elduð...
teljari
Vill einhver plís segja mér hvað stendur þarna við reykjalin.com ?
Ég var að setja nýjan teljara á vefina mína þar sem reinvigorate teljarinn sæti er eitthvað þreyttur. Skemmst frá því að segja er þessi nýji teljari alveg að brillera á heimilinu. Með honum get ég séð hvað hver er að skoða, hvenær, hvaðan og hvert hann fer. og ótrúlegt en satt er reykjalin.com síðan, sem hefur ekki breyst í háa herrans tíð en stendur til bóta, að fá mun fleiri hits en síða sonarins sem þó er hvað mest lifandi. -og ég kvarta ekki undan heimsóknum á þann vef.
Hönnunarverðlaun FÍT
Annars fékk ég skemmtilegt verkefni í kvöld. Ég var nefnilega kölluð til að dæma tilnefningar ársins 2004 í Hönnunarverðlaunum FÍT (félags íslenskra teiknara). Ég fæ því að sjá rjómann af hönnun síðasta árs á einu bretti í kvöld og get lagt mitt að mörkum til að velja það besta.
dagmömmumál
Það er naumast að veðrið er búið að vera ljúft síðustu daga. Við Danni röltum til einnar dagmömmu í hverfinu í gær í góða veðrinu og ég er svona eiginlega enn í svolitlu sjokki. Konan var ákaflega ljúf og góð en aðstæðurnar sem hún var með voru hrikalegar. Kannski er ég svona góðu vön eða kröfuhörð en mér er nú samt ekki alveg sama hvar barnið mitt dvelur á daginn.
Það er aðeins verið að melta komandi mánuði hérna á heimilinu, hvað til bragðs skal taka. Það er ekki um auðugan garð að gresja með dagmömmur og spurningin er hreinlega hvort maður vill eyða helmingnum af laununum sínum í að borga einhverjum út í bæ fyrir að annast barnið sitt, sem maður vildi helst af öllu gera sjálfur.
Til hamingju með afmælið mamma mín!
Já, hún mamma mín á afmæli í dag, síung að vanda. Bestu hamingjuóskir fóru til hennar í pósti áðan, en netsambandið er búið að vera, tja ekki til staðar í allan dag. En hér með fær hún hamingjuóskir og svo ef til vill símtal í kvöld.
the end of the world as we know it..
Einhversstaðar heyrði ég að versti dagur ársins hefði verið í gær. Ekki var ég vör við það, þetta var ágætis dagur. Þegar ég náði í blaðið í morgun var mér sagt á fyrstu síðu að allt myndi fara til andskotans hérna ef staðan væri óbreytt eftir tíu ár.. a.k.a. Global warming. Minni grein hefur hreyft við mér. Á næstu opnu var stór auglýsing um ódýrt bensín. Great. Mitt framlag til að viðhalda status quo.
Ef það eru einhverjir í heiminum sem eiga að hætta að nota bensín þá eru það Íslendingar. Ég þoli ekki þessa gengdarlausu bensíneyðslu. Gremja út í olíufélögin hefur kannski sitt að segja í því. Við höfum reyndar náð að versla eingöngu við Atlantsolíu eftir að olíufélagaskandallinn kom upp, utan við eitt skipti þegar við vorum á Dalvík og í dag þurfti ég að kaupa nýjar rúðuþurrkur og lét starfsmann Esso þræla út í að skipta um fyrir mig.
Ég skil ekki af hverju það er ekki meiri umræða um vetnisbílavæðingu í þessari gremju, kannski er enginn eins langrækinn og ég. Ég er þó viss um að ef vetnisbíll er raunhæfur valkostur þá mun almenningur taka hann framyfir bensínbílinn. Útópían er náttúrulega að hafa góðar almenningssamgöngur í borginni (virðist ekki ætla að rætast), eiga smábíl í borgarsnattið, taka vetnislestina norður í land og njóta þess að horfa á ósnortið landslagið yfir Kjöl á leiðinni.
Miðað við hvað tíminn hefur liðið hratt undanfarið þá eru tíu ár sem og á morgun og spurningin er þá annaðhvort að gera eitthvað eða að byrja að pakka.
hljómur vikunnar
Ég hef verið að hlusta svolítið á Nancy Sinatra undanfarið, dúndur góð tónlist hjá henni. Ég hef reyndar algeran viðbjóð á kántrí tónlist en hún gerir nokkuð vel heppnaða blöndu af amerískri folk tónlist og ofur retro 70s Tarantino stælum. Gott mix.
Nancy hljómar sérstaklega vel í nýja Tivoli útvarpinu okkar sem kom um daginn, viku seint vegna tafa hjá ShopUsa en gleðin þeim mun meiri.
Já Nancy og Tivoli eiga margt gott sameiginlegt, hljómurinn, mónóið og atmóið einhvernvegin.
Gleðilegan bóndadag
Þegar maðurinn kemur heim............
1. Hafðu kvöldmatinn tilbúinn á réttum tíma. Það veitir honum þá tilfinningu að þú hafir verið að hugsa um hann og að þér sé annt um þarfir hans. Flestir karlmenn eru svangir þegar þeir koma heim og tilbúinn matur er hluti af því að láta hann finna hversu velkominn hann er heim, en það er karmönnum nauðsynlegt.
2. Notaðu 15 mín.til að snyrta þig og skipta um föt áður en hann kemur. Hann er að koma heim úr leiðinlegri og erfiðri vinnu og er þreyttur. Vertu svolítið hress og skemmtileg til að hressa hann við.
3. Taktu upp allt rusl og dót. Farðu eina umferð um húsið og safnaðu saman skólabókum, leikföngum, pappírsrusli og blöðum. Renndu svo tusku yfir borðin til að þurrka af og þrífa svolítið. Eiginmanni þínum mun finnast hann kominn í friðarparadís og það hefur mikið að segja fyrir hann.
4. Snyrtu börnin til. Það tekur aðeins nokkrar mínútur að þrífa hendur og andlit og greiða þeim. Ef þarf, skaltu láta þau skipta um föt. Þau eru hans fjársjóður og hann vill sjá þau þannig.
5. Sjáðu til þess að húsið sé hljóðlátt. Slökktu á öllum vélum, s.s. uppþvóttavél, þvottavél, þurrkara og ryksugu. Reyndu að sjá til þess að börnin hafi hljótt. Taktu á móti honum með glöðu brosi.
6. Gættu þess að hella ekki yfir hann kvörtunum þegar hann kemur. Ekki heldur kvarta þó hann komi of seint í mat. Þú getur verið viss um að þínar kvartanir eru minniháttar í samanburði við það sem hann hefur þurft að þola yfir daginn.
7. Sjáðu til þess að hann hafi það þægilegt. Láttu hann halla sér aftur á bak í hægindastól eða stingdu upp á því að hann halli sér smástund í rúmið. Vertu tilbúinn með kaldan eða heitan drykk handa honum. Bjóddu honum að klæða hann úr skónum og hagræddu púðunum undir honum. Ræddu við hann með rólegri, mjúkri röddu. Leyfðu honum að slaka á.
8. Láttu hann ráða kvöldinu. Ekki kvarta þó hann fari ekki með þig út að borða eða á aðrar skemmtanir, reyndu í stað þess að skilja að hann hefur fengið sinn skerf af streitu og látum yfir daginn og þarfnast hvíldar heima.
9. Markmiðið er að gera heimilið að stað þar sem eiginmaður þinn getur fundið frið og reglu og getur slakað á eftir erfiðan dag.
Þessar reglur eru teknar úr kennslubók í heimilisfræði 1950.
píslið mitt
Ég fór með soninn í vigtun í dag, hann virðist vera að erfa stærð foreldra sinna þar sem hann er að sveigja niður af meðalkúrfunni. Hann verður 9 mánaða á laugardaginn en hefur ekki náð 8kg þyngd ennþá. -Sem handleggurinn á mér þakkar reyndar fyrir. Hann borðar hins vegar þar til hann stendur á blístri og ber engin merki um að vera eitthvað veiklulegur, aldrei orðið lasinn, fengið hita eða neina gubbupest að ráði. Næsta mánuðinn fær hann hins vegar smjör, rjóma eða olíu út á allan sinn mat, heitan mat tvisvar á dag, svona til að friða heilsugæslufólkið.
Ég get ekki skilið það hvernig heimskt fólk fer að því að ala upp börn, það er ekkert smáræði sem maður þarf að vita, skilja og gera á hinum ólíkustu sviðum í uppeldinu. Kannski er ég bara einum of skipulögð og þarf að slaka aðeins á.
shp
oh, mig langar geðveikt að kaupa mér flotta boli. Dollarinn er hagstæður núna og aldrei hægt að finna flott föt á þessum útsölum hérna í bænum, reyndar eru allir flottu bolirnir á threadless búnir líka, -í minni stærð amk.
Ég þarf allavega að hressa upp á fataskápinn áður en ég fer að vinna aftur, það er for sure.
Íslensk sjónmenning
"Icelandic National Team ætlar á næstu mánuðum að gera tilraun til gefa út veglegan PDF-bækling sem verður einskonar yfirlit yfir íslenska hönnun og sjónmenningu á árinu 2004. Bæklingurinn verður bæði á íslensku og ensku og verður honum dreift til helstu íslenskra og erlendra hönnunarsetra á netinu þar sem hann verður væntanlega boðinn til niðurhals. Allt er þetta gert til að kynna íslenska hönnun og sjónmenningu, bæði hér heima og erlendis. Hugmyndin er að sýna það ferskasta sem er að gerast í íslensku hönnunarlandslagi í dag".
Þetta er alveg málið. Ef ég hefði ekki verið upptekin við að unga út barni og ala það upp hefði ég örugglega eitthvað spennandi að senda, en eitt er víst að ég verð pottþétt (hlýt að vera) með á næsta ári. Til að það megi gerast þarf ég að vera dugleg, núna.
þetta eina sanna
Getur einhver sagt mér hver munurinn er á diet coke og coca cola light? Ég er auðvitað hætt í kókinu en af því ég er nýungagjörn og læt platast í svona markaðstrixum þá fékk ég eina svona "light" (brandið minnir mig á sígarettur) og þvílíkt ógeð, alveg eins og diet coke. Fyrsta bragðið sem ég fann var helv, aspartam bragðið. Þegar ég var hálfnuð með flöskuna fann ég vissulega þetta kókbragð en restinni hellti ég niður.
look at the time...
Af hverju hlustaði ég ekki á fréttirnar í kvöld þegar var sagt að maður grennist ekki nema maður fari snemma að sofa ....arrggg
Habitat og Tivoli
Ég var búin að gleyma því hvað Habitat er æðisleg búð. Ein af fáum sem er dásamlegt að heimsækja á útsölu, jólaskrautið er himneskt (ákvað að versla slatta af flottu jólaskrauti á útsölu og setja það svo beint ofan í jólakassann) og jólapappírinn sömuleiðis. Hann var ekki kominn þegar ég kíkti þangað fyrir jólin. Smáatriðin skipta svo miklu máli og um þau er hugsað í Habitat. God is in the details sagði einhver.
Við keyptum líka hillu til að setja yfir eldhúsborðið í eldhúsinu. Þar á að sitja jólagjöfin sem er á leiðinni frá ameríku, á vonandi að koma á morgun. Ég hlakka til.
Betra seint en aldrei
Jólakveðja frá Aljazeera, arabísku fréttastöðinni. Áhugaverðar teiknimyndir þarna.
Siðareglur
Tölvupósturinn kominn á vísan stað
Ég var að ná í Mozilla Thunderbird sem er email forrit svipað og Outlook en bara miklu betra. Lúkkar mjög vel og öll funksjón gengur fullkomlega upp og því er það ákaflega vel hannað að mínu mati. Mun léttara og öruggara forrit. Hvet alla til að skipta yfir í Thunderbird (í staðin fyrir Outlook) og Firefox (í staðin fyrir Internet Explorer).
heit
Áramótaheitið hjá mér er að hluta kennt við neyslu eins og hjá mörgum öðrum. Þeir sem strengja svona heit á annað borð heita því að verða betri á eftir og lang flestir ætla því að hætta einhverjum ósið. Ég veit að ég á ekki sjens í að hætta að borða súkkulaði þannig að ég ætla ekki einusinni að fara þangað. Hins vegar ætla ég að reyna á það að hætta að drekka gos, núna er komin vika og það er auðvitað ekkert mál.. segi ég ennþá. Hitt kemur svo seinna.. vonandi.. kannski
En svo er eitt grafískt áramótaheit. Ég var nefnilega að fatta að ég er ekki búin að gera bobs svona hönnunarlega séð á síðasta ári. Ekkert sem ég get státað mig af enda verið upptekin við önnur yndisleg verkefni. Þetta fattaði ég þegar Raggó fór að auglýsa eftir efni í Icelandic Visual Culture 2004 En núna, samhliða uppeldinu, ætla ég að reyna að gera eitthvað merkilegt og skemmtilegt svona grafískt séð að minnsta kosti eitt verkefni í hverjum mánuði. Þá mun ég vonandi eiga 12 verk sem ég get sýnt með stolti á sama tíma á næsta ári. Það væri fjör.
bloggið
Frískaði aðeins uppá þetta. Bleika lúkkið varð til sem mótvægi við öllu ljósbláa dótinu sem hafði bæst við líf mitt, núna þarf maður aðeins jarðsamband. Smá ferskleiki er skrif-hvetjandi.
eilítil hönnunarkrítík
Ég elska fallegar uppskriftabækur. Þær sameina þrennt sem ég hef mikinn áhuga á; matur, fallegar ljósmyndir og fallegt og vel upp sett letur. Þegar maður hefur auga og bragðlauka í þetta þá á það ekki að geta klikkað. Tímarit eru ennþá dásamlegri þegar þau heppnast vel, draumadjobbið væri í raun að setja saman röð tímarita sem fjalla um mat. MMMmmm já.
nýtt
Nýtt ár. já gleðilegt nýtt ár. núna hellist yfir mig löngun til að breyta til á sem flestum sviðum, snúa svefnherberginu við, nýjar gardínur, nýtt á veggina í stofunni, nýja desktop mynd í tölvunni, nýjan playlista, nýtt lúkk á vefinn, nýtt í fataskápinn, nýja hárgreiðslu...
Nýja árið kemur með einhvern nýjan ferskleika sem ég vil halda í eins og ég get. Þetta snýst ekki svo mikið um að kaupa eitthvað nýtt og henda því gamla heldur að breyta til og endurskoða og ákveða hvernig stíl maður vill þróa og í raun hvað lífið manns snýst um. Ég er svolítið þannig þenkjandi þessa dagana.
Ég var nefnilega mjög hrifin af árslistanum hans Ragga og hugmyndinni hans Tryggva um að setja til hliðar þau lög sem maður hlustaði hvað mest á yfir árið. Uppgjör er nauðsynlegt, þetta er eins og að laga til og fara út með ruslið.
2