Do they know it's christmas time at all...
já gamla band aid lagið er farið að hljóma aftur, í nýjum búningi með nýjum stjörnum sem hver og ein gefa af sér eina línu eða svo. Er nokkuð nema gott um það að segja?
Mér hefur samt alltaf fundist vera einhver hrokafnykur af þessu lagi. Þessi vestræni hroki sem segir að "my way is the right way" og allir aðrir sem hafa það ekki eins og ég hljóta að hafa það miklu verra. Auðvitað er það hugurinn sem skiptir máli í þessu lagi og það að verið er að reyna að fæða hungraðan heim en þetta fer eitthvað í mig.. where nothing ever grows, no rain no river flows...
Svo er annað mál að ef menn hefðu virkilega áhuga á því að bæta hungur heimsins þá væri löngu búið að því en það er önnur og lengri pólitík.
En hvað veit ég svosem, ég sem hélt alltaf að þau segðu "people wOOoo" í viðlaginu en ekki "feed the wOOOoorld" þangað til bara núna :S
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 105 færslur.
/ Álit
gunna:
Já.. nákvæmlega. Fengu allir þessir listamenn virkilega ekki krónu? Var enginn Kristján í þeim?
En jæja, þetta kannski vekur fólk til umhugsunar, sem er jákvætt.
Freyja:
Þarna komstu með góða pælingu Dagný....
Ég las um Chris Martin, söngvara Coldplay að hann hafi ákveðið að vera með vegna þetta að Fran í Travis var með... það er asnó.
Hann missti prik, en ef ég væri með hatt þá tæki ég hann ofan fyrir Bono sem hefur staðið sig mjög vel í þessu, m.a. barist fyrir því að þróunarlöndin fái niðurgreidda vexti af erlendum lánum eða algjöra niðurfellingu.
Það er náttúrulega alveg satt i textanum að þarna á þessu svæði (Eþíópíu og nágrenni) er afar fábrotinn gróður og lítil sem engin rigning, ég held að það sé ekki hroki, mér finnst það bara vera að benda á staðreyndir. Reyndar finnst manni að fólk sé að taka þátt í þessu til að auglýsa sig, aumingjasns Joss Stone grét og grét þegar hún sá myndband frá Eþíópíu (sést í myndbandinu), mér fannst það svolítið "ódýrt", hún sem fulltrúi þeirra sem allt vita (bandaríkjamanna) þá var eins og þetta kæmi henni á óvart, við hér á þessu landi höfum nú alist upp við þessar hryllingsmyndir úr fréttunum, en auðvitað eru þær alltaf jafn hryllilegar, en að grenja í myndavélina finnst mér ódýrt, segi það og skrifa. Bob Geldof og Bono eru ekta held ég.
Jiii, hvað ég er búin að skrifa mikið, ég hætti núna, Tchuss kæra Dagný og familý
já nákvæmlega, hverjir eru ekta.. það er málið. Þeir sem eru ekta eru þeir sem virkilega taka til hendinni en eru ekki að þessu fyrir egóið, eða góðverk á dag.
takk fyrir innleggin kæru systur
aslaug:
og "do they know it's christmas at all" lika svolitid mis thvi thad eru allsekkert jol hja theim- eda nokkur onnur truarhatid i lok desember.. thannig ad theim er vaentanlega nokk nakvaemlega saman.. en thad er lika bara aukaatridi.

