Jólin og áramótahugleiðingar
Lífið er búið að vera notalegt. En ekki hvað? Litla familían dvelur nú fyrir norðan í faðmi fjölskyldunnar og fjallanna. Því skýtur í hugann af hverju í ósköpunum maður fer að keyra alla leiðina suður aftur? Undarlegt að fá heimþrá þegar maður er "heima", eða á heimaslóðum amk. Þó svo að íbúðin og lífið fyrir sunnan sé dásamlegt á sinn hátt þá eru lífsgæðin einhvernvegin ekki þau sömu.
Áramótin fá mann líka til að hugsa svolítið fram á veginn, hugsa um 5 ára planið sem og næstu mánuði framundan. Það þarf allt að vera svolítið opið.
Aldrei þessu vant fékk ég nokkrar bækur í jólagjöf. Ég er hins vegar ekki byrjuð að lesa. Óli er hins vegar dottinn ofan í DaVinci lykilinn sem allir í heimi virðast hafa lesið á síðasta ári. Ég á hana líka eftir. Núna les ég aðallega í son minn sem kann að segja já og nei á sinn hátt, kann að biðja mig um að taka sig upp, skilur djókið mitt og djókar í mér á móti, kann að biðja mig um að lúra með sér og kann að biðja um sopann sinn. Það er besta sagan, mesta meistaraverkið.
pakk
Í fyrramálið munum við stráksi halda af stað norður á bóginn með Hönnu og Steina. Og ég er rétt að byrja að pakka núna. Ég skil ekki af hverju ég er ekki búin að pakka fyrr, það er ekkert grín að pakka fyrir svona lítinn strák, birgðir fyrir tvær vikur. Það er huggun í harmi að Óli kemur eftir nokkra daga norður með það sem ég gleymdi að pakka niður núna því það er alveg pottþétt að eitthvað gleymist, hvað það verður veit nú enginn... vandi er um slíkt að spá...
Annars eru það eilíf jólahlaðborð þessa dagana, var að koma heim úr vinnugleði úr Austurstrætinu (og nei ég vinn ekki á kaffi..!) og er ennþá södd eftir jólahlaðborðið í perlunni á miðvikudaginn, maaan það sem var innbyrgt af mat þar, magnið og gæðin... smmmaaacckk! ég verð heila eilífð að skokka það af mér.
En jæja best að koma sér að verki,.. setja fataskápinn ofan í tösku.
Knappur skilafrestur er óhollur fyrir hjartað
Ekki góðar fréttir fyrir grafíska hönnuði hér á landi þar sem það er landlægt vandamál að allt er unnið á síðustu stundu.
Smáralindin tekin í dag
Ég og stráksi þvældumst út um Smáralind í dag. Það var ansi þreyttur lítill snáði sem sofnaði inni í herbergi í kvöld enda erum við svo að segja búin að ljúka jólainnkaupunum.
Ég ákvað að reyna að finna mér einhver jólaföt því ég fékk mér engin föt í fyrra þegar ég var ólétt. Allan mánuðinn (og meirihlutann af nóvember líka) er ég búin að skoða og var eiginlega búin að útiloka það að detta niður á eitthvað sem mig virkilega langaði í, var eiginlega komin niður á það að fá mér gróft ullarpils og rúllukragabol við, hins vegar erum við að fara á jólahlaðborð í perlunni í vikunni og mér finnst maður þurfa eitthvað aðeins meira fansí í það.
Svo í dag sá ég alveg rrrrosalega flottan kjól í Esprit í Debenhams. Það var eiginlega ást við fyrstu sýn. Hvort hann er ekki bara hér - nema miklu flottari á mér! haha! Eftir að ég var búin að máta og sonurinn búinn að samþykkja þá keypti ég hann. Og auðvitað í svona fínum kjól þarf maður að vera í viðeigandi brjóstahaldara. Ég sem hef verið í stöðugum gjafahaldarainnkaupum á þessum síðustu meðgöngu-og-brjóstagjafatímum, í öllum stærðum líka, svo að það flæðir upp úr skúffunum hjá mér. Þeir eru samt ekki mjög sexí undir svona kjól.
Konan í nærfatadeildinni vildi endilega mæla til að sjá stærðina og ég var mjög sátt við það, enda hafa haldarakaupin hingað til verið svolítið happa glappa því stærðirnar á brjóstahöldurum eru true rocket science. Eftir málin spurði hún mig hvort ég hafi verið að kaupa stærð E? Vóó! ég á einn þannig sem ég notaði mikið rétt eftir að Danni fæddist en þetta sagði hún, að 34E passaði mér best. 34 er samt þokkalega mjótt, ég hef yfirleitt alltaf tekið 36, jafnvel 38. 34E er eiginlega bombustærð! :o
Ég er enn að jafna mig á þessu.
kvöldmaturinn
Júgóslavneskur gúllasréttur úr dásamlegu matreiðslubókinni hennar Nönnu.
bestasta leitarvélin.. ugh
Rétt í þessu fékk ég póst, tvo reyndar þó svo þeir þykist ekki vera að senda spamm, sem er að segja mér frá nýrri leitarvél sem heitir í höfuðið á landnámshrafni og skólablaði fyrir norðan, Muninn heitir hún og ber slóðina http://iceland.munax.com:8090/nindex.htm (splæsi ekki linki á þá) Þó mér finnist gaman að fá að vita um nýja hluti þá er ýmislegt sem pirrar mig í þessu:
1. Óumbeðinn tölvupóstur er spamm, það þýðir ekkert að setja klausu sem segir "þetta er ekki spamm" til að fría sig frá því.
2. Það er bannað að nota lýsingarorð í hæsta stigi í auglýsingum eða slagorðum á Íslandi. "Besta leitarvélin á Íslandi" er því ólöglegt. Auk þess er leitarvélin ekki á Íslandi þannig að þetta er ekki bara ólögleg heldur líka röng fullyrðing.
3. mér finnst meiriháttar óeðlilegt og ógeðfellt að geta slegið upp leit að nafni og listað upp netföng bara sísvona. Jú, gæti verið hentugt ef manni vantaði netfang hjá félaga sínum en býður upp á alveg ógrynni af spammmöguleikum (þó svo spammbotar geti alveg pikkað upp netföngin eins þá hjálpar þetta þeim sem ekki nenna að forrita svona bot)
4. vefslóðin er arfaléleg, enginn nennir að muna þetta. Ef menn hefðu hugsað þetta lengra gæti þetta heitið Huginn og Muninn (báðir landnámsfuglarnir) og huginn.is er laust.
5. Útlitið ber þess merki að um viðvaninga á því sviði er um að ræða.
ÉG er nú enginn penni um svona tæknihluti, læt hann Trigger vin minn um það (gaman væri að vita hvað honum finnst um þetta), en ég varð bara að setja inn mín tvö sent um þetta.
Kennslan búin - komin í jólafrí
Ef þið viljið skoða hvað nemendurnir mínir litlu sætu og duglegu voru að gera þá má sjá þá hér: esther katrín ragnheiður ísak óðinn óli sunna.
Það bendir allt til þess að ég fái tækifæri til að endurtaka þetta á næsta ári, það yrði gaman en við sjáum bara til.
Í kvöld ætlar gamli LHÍ bekkurinn minn að hittast og sprella, það gæti því orðið þunnur þrettándinn á morgun.
síðasti kennsludagurinn
Síðasti dagurinn í kennslunni er á morgun, þá verður yfirferð á verkunum sem búið er að gera. Það er ekki laust við að ég sé álíka stressuð og nemendurnir sjálfir. Ég fæ svona smá dejávú fílíng.
Hildur ætlar að koma og passa og ég vona að Danni taki ágætlega í það, jafnvel þó hann hafi ekki séð hana lengi.
reyndu bara að spamma mig núna helvítið þitt!
Þessi dásamlega spammvörn er komin á bloggið mitt eftir að ég henti út 150 spammskeytum sem voru sett á bloggið mitt í morgun. Guð blessi MT-forritara og skrattinn hirði spammara.
Do they know it's christmas time at all...
já gamla band aid lagið er farið að hljóma aftur, í nýjum búningi með nýjum stjörnum sem hver og ein gefa af sér eina línu eða svo. Er nokkuð nema gott um það að segja?
Mér hefur samt alltaf fundist vera einhver hrokafnykur af þessu lagi. Þessi vestræni hroki sem segir að "my way is the right way" og allir aðrir sem hafa það ekki eins og ég hljóta að hafa það miklu verra. Auðvitað er það hugurinn sem skiptir máli í þessu lagi og það að verið er að reyna að fæða hungraðan heim en þetta fer eitthvað í mig.. where nothing ever grows, no rain no river flows...
Svo er annað mál að ef menn hefðu virkilega áhuga á því að bæta hungur heimsins þá væri löngu búið að því en það er önnur og lengri pólitík.
En hvað veit ég svosem, ég sem hélt alltaf að þau segðu "people wOOoo" í viðlaginu en ekki "feed the wOOOoorld" þangað til bara núna :S
jólagjafamál
Í gær fórum við svo í bólstaðina og gerðum konfekt með Óla, Evu og Kormáki sem varð til þess að ísskápurinn er nú undirlagður af hjúpuðum marsipanmolum, skreyttum með hvítu súkkulaði.
Já mikið rooohoosalega er hvítt súkkulaði gott, ég var næstum því búin að gleyma því...
Það var líka tekin rasssía (elska þetta orð) í jólagjafainnkaupum um helgina þannig að megnið af gjafalistanum er búið að afgreiða. Sonurinn á þar sinn pakka líka. Hins vegar er það, ótrúlegt en satt, frekar erfitt að útbúa eigin óskalista þessi jól. Ég veit ekki af hverju það er, kannski er maður kominn í þennan "á allt" hóp, eða maður verður bara nægjusamur þegar erfinginn er kominn. (..sem er ekki gott fyrir hann, minna að erfa) ;)
supermom
Tékklistinn grynnkar stöðugt. Kennslan gengur ágætlega, eiginlega er alveg magnað að hafa fengið þetta tækifæri og minna mál en ég hélt að kenna nokkrum hönnuðum að setja upp vef fyrir sig. Ég vona bara að næsta vika verði jafn góð og skemmtileg.
En tíminn líður maður, jólakortin ekki ennþá til.. myndirnar eru ekki einusinni farnar í framköllun! jésúss minn. En ég held að við séum nokkuð sátt við myndirnar sem við tókum, enda alveg einstök fyrirsæta sem við eigum.
Fyrsta sortin er líka komin út úr ofninum. Það voru súkkulaðismákökur úr Hagkaupsbókinni, einfaldar og mjög góðar. Spurning hvað kemur næst, hugmyndir vel þegnar -verður bara að innihalda súkkulaði, eða vera velt upp úr súkkulaði... kannski konfekt, ég á nú nokkrar konfektuppskriftir, jummmm, og keypti einmitt marsipan og núggat í búðinni á leiðinni heim.. skemmtileg tilviljun það.
argasti dónaskapur
Það er nokkuð ljóst að Kristján Jóhannsson selur húsmæðrum þessa lands ekki mörg eintök af diski sínum um þessi jól, eftir frammistöðu sína í fjölmiðlum undanfarið..
1