S60 er komin í hús!

Foreldrar Óla komu til landsins í dag og keyptu í búðinni alveg geysifagra myndavél fyrir okkur, kvöldið hefur því farið í allskonar prufutökur til að testa hina og þessa fídusa. Það er nefnilega hægt að stilla allt, allt frá ljósopi og hraða upp í styrkleika flassins og hægt að velja um fuglasöng eða hið hefðbundna smell þegar maður smellir af. Dásemd.
Af þessu tilefni gluggaði ég aðeins í Ljósmyndabókina eftir John Hedgecoe frá árinu 1982, sem situr hér spök uppi í hillu og stendur enn mjög vel fyrir sínu. Geysilega góð bók. Eftir smá flett í henni langar mig mjög mikið að versla filmu í gömlu Polaroid myndavélina hennar mömmu sem er að rykfalla niðri í geymslu hjá mér, og taka nokkrar myndir á hana. Þó svo nýja digital vélin geti gert ALLT þá stendur gamla Polaroid alltaf fyrir sínu.


Þriðjudagur 16. nóvember 2004 kl. 21:47
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 105 færslur.

/ Álit

Tryggvi R. Jónsson:

Til lukku ;) S60 er gott mál!

17.11.04 00:10