orlofið
Ég er búin að lengja fæðingarorlofið mitt. Mér fannst illt til þess að hugsa að fara að vinna eftir næsta mánuð, þó svo vinnustaðurinn sé alveg frábær þá er strákurinn ennþá svo ungur. Þar sem það hentaði fyrir vinnustaðinn þá hef ég seinkað komu minni þangað þar til 1. mars. Þá verður Danni orðinn 10 mánaða og verður með pabba sínum í 2 mánuði, eftir það færi hann á leikskóla eða til dagmömmu.
Mikið líður mér betur núna, vitandi að eftir jólin getum við verið áfram saman heima í einhvern tíma.
Föstudagur 12. nóvember 2004 kl. 18:05
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
freyja:
Glæsilegt...
til lukku með lengra frí, vel þess virði.
I like this
F
ég er viss um að snáðinn er líka sáttur :) - gott mál.
já, vona það :) Það er bara ótrúlegt hvað tíminn flýgur.. þetta var ekki svona hér áður fyrr!

