Olíumálið

Þar sem kaffistofan á vinnustaðnum mínum í dag er ekki mjög fjölmenn þá þarf ég aðeins að viðra mig hérna.


Ég var nefnilega að horfa á útsendingu frá Alþingi á utandagskrárumræðu um ólöglegt samráð olíufélaganna. Alþingi er nefnilega ekki leiðinlegt sjónvarpsefni ef umræðuefnið er áhugavert. En allavega.


Ég hef rekið bifreið aðeins um helming þess tíma sem "stóra olíuhneykslið" nær til en hef svo sannarlega fundið fyrir því að bensínkostnaður hefur verið gífurlegur. Og ég er bara með einn lítinn heimilisbíl, fer öðru hvoru út á land en er annars frekar eyðslugrönn á bensín. Pabbi minn er hins vegar útgerðarmaður með eigin bát og kaupir massa mikið af olíu í hverri viku þannig að þetta hefur haft geigvænleg áhrif á hann, hans rekstur og því alla okkar fjölskyldu.


Allan þennan tíma hefur maður keypt rökin um að dollarinn sé hár (þó svo niðursveifla dollara hafi ekki togað bensínverð niður með sér), við búum á eyju í ballarhafi og flutningskostnaður sé því hár, stríð í olíulöndum valdi háu kaupverði -þó svo ég muni ekki eftir stríði í Noregi í augnablikinu.
Við erum þokkalega búin að láta taka okkur í bakaríið!

Það er gott mál að það er búið að uppljóstra þessu. Samkeppnisstofnun búin að setja fram sektir á hendur olíufélögunum sem bæði, eru algjört lágmark að mínu mati og einhver ár í að þau borgi þær, vegna þess að þetta á eftir að velkjast um í kerfinu í einhver ár og almenningur verður orðinn dauðþreyttur og drullusama um þetta mál.


En sektir eru ekki nóg, almenningur þarf líka bætur! Við finnum varla fyrir því ef eingreiðsla fer í ríkissjóð nema skattalækkun kæmi jafnvel á móti. Einhversstaðar (innherjum á vísi minnir mig) las ég hugmynd um að olíufélögin ættu að borga með olíunni í einhver ár þar til þau yrðu kvitt við neytendur. En það leiðir bara af sér bruðl með bensín sem er hvorki okkur hollt né móður jörð.


Verður ekki bara týpískt að félögin lýsi sig gjaldþrota vegna hárra krafna, finni sér nýja kennitölu og byrji upp á nýtt. Einhverjir eiga jú eftir að fara í steininn, en þeir eiga líka þær fyrirmyndir að hægt er að rísa úr öskunni og kaupa Landsbankann.


Það er rétt það sem Jóhanna Sigurðardóttir sagði á Alþingi áðan, þetta mál er prófsteinn á það hvort við búum í Bananalandi eða ekki. Solla hins vegar kom ekki í pontu.


Best væri líka að fá upp rétt verð á bensíndæluna strax!


ps. ég styð heilshugar þetta tölvuskeyti sem segir að við eigum að hunsa allar aðrar vörur en bensín á bensínstöðvunum, og vona að þú gerir það líka!

Föstudagur 05. nóvember 2004 kl. 14:55
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 105 færslur.

/ Álit

Ragnar:

Ef fólk heldur að þetta mál sé fyrst sönnun fyrir því að Ísland sé bananalýðverldi þá þarf fólk aðeins að hugsa sinn gang.

Þangað til tölvupóstar á milli starfsmanna olíufélaganna voru gerðir opinberir hafa allar kenningar um samráð verið flokkaðar sem nánast landráðssamsæriskenningar. Núna þegar búið er að sanna þetta og allir forstjórar allra fyrirtækja í landinu búnir að banna starfsmönnum sínum að nota tölvupósta við svindl þá er eina niðurstaðan sú að Sólveig Péturs fær ekki að vera dómsmálaráðherra og Þórólfi verður fórnað.

Þetta hafa Íslendingar kosið yfir sig og er mátulegt á þá.

05.11.04 16:06


dagný:

Það er auðvelt að segja bara gott á okkur.. það er alveg sama hverja við hefðum kosið "yfir okkur".. ef gaurar hafa svona einbeittan brotavilja þá geta menn gert of ýmislegt.
Þórólfur spilar sig sem voða gúddí gæja en hann þarf að vinna sér inn mikið traust.
Þetta með tölvupóstinn minnir óneitanlega á það þegar Rumsfeld sendi skilaboð til hermanna sinna í Írak að hætta að taka myndir.

05.11.04 16:45


gunna:

Með reglulegu millibili missir maður alla virðingu fyrir mannskepnunni...

07.11.04 16:40


mundi:

þetta er nú ekki svo slæmt - olíufélögin harma þetta og biðjast afsökunnar. - kúkalabbar -

08.11.04 11:02


dagný:

já, fyndið að olíugaurarnir báðust afsökunar "hver með sínum hætti" (skýrt tekið fram)
þ.e. ekkert samráð með afsökunarbeiðnirnar ;)

08.11.04 13:48