jólaskipulag

Ég veit að það er langt til jóla, en jólin eru samt bara í næsta mánuði. Ég ætla að reyna að falla ekki í þá gryfju að fara að hlakka of snemma til jólanna því reynsla undanfarinna ára hefur sýnt að stuðkvótinn getur klárast áður en jólin byrja. Það er ekki stuð.
En til að allt gangi sæmilega upp þarf að fara að skipuleggja. Jólakortin í ár verða með örlítið breyttu sniði eins og mátti búast við. Ég er þessa dagana að hanna kortið þó svo það verði að miklu leyti gert í höndunum. Samt verða þetta svo mörg eintök að það er erfitt að ætla að dekra sérstaklega mikið við hvert og eitt. Einhverjir fá svo heimagerðar jólagjafir sem á eftir að ganga frá og síðan er það auðvitað baksturinn og konfektgerðin ásamt því að njóta hvers einasta dags með litla stubb til hins ítrasta því það styttist í að orlofinu ljúki og að ég snúi til vinnu aftur.
Aðalmálið er því að byrja snemma, ætla sér ekki of mikið og slaka á því tíminn líður hraðar en mann órar fyrir.


Sunnudagur 07. nóvember 2004 kl. 21:47
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

kristjana:

úff dagný þú ert svo dugleg...er ekki alveg að sjá mig í anda í öllu þessu húsmæðrastússi, ætli ég kaupi ekki bara jólakortin, konfektið og kökurnar frá kexsmiðjunni þær eru næstum eins og heimagerðar:)

09.11.04 16:38