hárið
hárið á mér er eins og reyttur hanahaus.. fyrir utan að veðrið og kuldinn fer ekkert sérstaklega vel með það og einhverjum finnst ofsalega gaman að tosa í hárið á mömmu sinni, þá eru hárin sem hrundu af þegar sonurinn var 3 mánaða (þetta klassíska) óðum að koma aftur.. semsagt litlar tæjur útum allt. mér er mest að skapi að snoða á mér hausinn en mig langar samt að hafa sítt hár..
þetta er kannski bara spurning um dekurdag hreinlega.
Miðvikudagur 10. nóvember 2004 kl. 15:47
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
minn tók einmitt ALLT af í fyrradag - makalaust þægilegt!
það er kannski bara málið...

