frk. kennslukona
Í síðustu viku var haft samband við mig úr gamla skólanum mínum og ég beðin um að kenna einn kúrs þar í vefhönnun. Þar sem þetta er bæði fínn aukapeningur og dúndur klausa í CV-ið þá sló ég til, fer að kenna í lok mánaðarins. Undirbúningurinn fer að hefjast, þetta eru tvær vikur sem ég hef til að kenna krökkunum að setja verkin sín inn á vefinn á góðan og fallegan hátt þannig að þau (og ég) geta verið stolt af. Tvær vikur er bara grín, svo það er best að setja í skipulagsgírinn.
Danni verður að öllum líkindum heima með pabba sínum þessa daga (6 morgnar alls) nema einhver vösk barnapía gefi sig hér með fram :)
Ég held að þetta verði mjög fróðlegt og skemmtilegt en jafnframt frekar krefjandi. Sem er gott, gaman að kynnast þessari hlið.
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur.
/ Álit
gunna:
Til hamungju með djobbið! Spennandi :)
freyja:
Til lukku með starfið, gangi þér sem allra best með þetta ljúfan.
Tengda:
Til hamingju með þetta, Dagný mín. Þú mátt vera montin af þessu, glæsilegt tækifæri.
takk mínar kæru,
þetta byrjaði í morgun og byrjaði vel, var svakalega gaman :)
almar:
Hei, hvernig væri nú að hafa námskeið fyrir vini sína? :)

