ein spurning...
Hvað á maður að gefa átta mánaða gömlum strák í jólagjöf?
Flokkað sem uppeldi. Þar eru 47 færslur.
/ Álit
hann á playstation ;)
almar:
Eithvað sem maður getur notað sjálfur hehe
t.d kippu af bjór :)
hmm... veit ekki almar.. held að það yrði upplit á ömmu og afa þegar litla barnið opnar pakkann sinn frá foreldrunum...
bara föt eða koss á kinn hann á ekkert eftir að muna eftir þessu hvort eð er:) hehe nei djók!
en annars þá man ég ekki hvað ég fékk í jólagjöf fyrstu jólin mín, held að mamma hafi aldrei sagt mér það né ég spurt..........
þetta er alveg nýtt umræðuefni yfir kveldmatnum á morgun!!!! hehe
mótorhjól virkar alltaf
já baddý ég man ekkert hvað þú fékkst í jólagjöf... endilega reyndu að láta þau gömlu rifja það upp.
- ég átti nú einusinni mótorhjól.. þegar allir aðrir voru á þríhjóli þá var ég á (fótstignu að vísu) bláu mótorhjóli með rauðu sæti. Ójá, það er örugglega í kjallaranum í bílskúrnum, nema það sé búið að selja það í varahluti.
já, einusinni var maður töffari.
ég held að hjólið sé enn í kjallaranum en hestuinn góði er enn í notkun og geymist í forstofunni, er iðulega tekinn fram þegar börnum ber að garði!!!
mamma mundi ekkert hvað ég fékk en sagði að hún hefði örugglega skifað það í barna bókina mína, ég gleymdi að gá því ég var búin að gleyma þessu þegar ég stóð upp frá matarborðinu!!! svona gott er minnið....hún hefði kannski átt að gefa mér minniskubb!!!:P
......ég hélt kannski að þú hefðir ráðist á pakkana mína fyrstu jólin mín og eigað þér gjafirnar mína af því að ég hafði ekkert vit á þeim...bara svona eins og með borði-dúkkuna sem ég hélt alltaf að þú ættir hehehehee.....
hvað meinarðu!!
;)
Ég myndi segja að eitthvað litríkt með skemmtilegum hljóðum hitti örugglega í mark, passa bara að hljóðin séu ekki of "skemmtileg" svo mamma og pabbi verði ekki biluð á því. Aðalatriðið er að hafa pappírinn flottan, ekki of þykkan svo barnið geti haft gaman af því að rífa utanaf. Það getur verið mesta skemmtunin fyrir 8 mánaða gamlan strák, að fá að rífa pappír.
já.. satt segirðu Valdís. Það er kannski líka spurning um að finna ætan pappír.. þar sem yfirleitt allt vill enda í munninum. :)
ætur pappír. er það ekki laufabrauð???

