digital kaplaskjólsvegur
já, við erum orðin stafræn. Nýji afruglarinn kom í hús í gær og er kominn í gagnið og útsendingin orðin alveg bráðskýr núna, a.m.k á því sem næst á honum. Við höfum ekki náð Skjá einum inn á hann ennþá, enda þótt langsótt megi virðast þá eru símafyrirtækin í samkeppni og eru ekkert að greiða hvors annars veg, jafnvel þó það komi sér betur fyrir notendurna.
En í tilefni þessa alls þá er fjölvarpið og stöð 2 opin, við erum nebblega bara með sýn, þannig að nú getur maður eytt allt of miklum tíma í að horfa á ekki neitt.
Mánudagur 15. nóvember 2004 kl. 00:03
Flokkað sem video. Þar eru 47 færslur.
Flokkað sem video. Þar eru 47 færslur.

