bubblíbubbl

já ég er á lífi en er þokkalega búin að vera á kafi og verð á kafi næstu daga, veit ekki hvenær ég kem upp til að anda....

Laugardagur 27. nóvember 2004 kl. 23:29 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 5

ein spurning...

Hvað á maður að gefa átta mánaða gömlum strák í jólagjöf?

Föstudagur 19. nóvember 2004 kl. 23:27 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem uppeldi / 12

ædolið

Þessi Brynja hlýtur að vinna idolið, jafnvel á slæmum dögum er hún óskiljanlega góð og flott stelpa! Ég sendi henni atkvæði en fór svo að pæla hvernig í ósköpunum það getur haft áhrif þegar þetta er ekki sýnt beint og það er fyrir löngu búið að taka upp atriðin.. er þessi sms og símakosning ekki bara yfirskin, verið að hala inn aurum? Reyndar engum smá aurum því ef þau segja að 30þús manns hafi kosið í kvöld þá þýðir það tæpar 3 milljónir króna í kosningasjóð! ÞAÐ er slatti. Eiginlega bara böns.

Föstudagur 19. nóvember 2004 kl. 23:26 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video / 2

frk. kennslukona

Í síðustu viku var haft samband við mig úr gamla skólanum mínum og ég beðin um að kenna einn kúrs þar í vefhönnun. Þar sem þetta er bæði fínn aukapeningur og dúndur klausa í CV-ið þá sló ég til, fer að kenna í lok mánaðarins. Undirbúningurinn fer að hefjast, þetta eru tvær vikur sem ég hef til að kenna krökkunum að setja verkin sín inn á vefinn á góðan og fallegan hátt þannig að þau (og ég) geta verið stolt af. Tvær vikur er bara grín, svo það er best að setja í skipulagsgírinn.
Danni verður að öllum líkindum heima með pabba sínum þessa daga (6 morgnar alls) nema einhver vösk barnapía gefi sig hér með fram :)
Ég held að þetta verði mjög fróðlegt og skemmtilegt en jafnframt frekar krefjandi. Sem er gott, gaman að kynnast þessari hlið.

Fimmtudagur 18. nóvember 2004 kl. 22:47 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 5

juletub

og svo tala menn um það að það sé ólöglegt að auglýsa bjór...
En það er stutt í að hefðin komist á að juletuborginn flytji í kælinn út á svalirnar hjá okkur.... Og ekki einusinni reyna það, við erum á annarri hæð!

Miðvikudagur 17. nóvember 2004 kl. 14:42 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið

S60 er komin í hús!

Foreldrar Óla komu til landsins í dag og keyptu í búðinni alveg geysifagra myndavél fyrir okkur, kvöldið hefur því farið í allskonar prufutökur til að testa hina og þessa fídusa. Það er nefnilega hægt að stilla allt, allt frá ljósopi og hraða upp í styrkleika flassins og hægt að velja um fuglasöng eða hið hefðbundna smell þegar maður smellir af. Dásemd.
Af þessu tilefni gluggaði ég aðeins í Ljósmyndabókina eftir John Hedgecoe frá árinu 1982, sem situr hér spök uppi í hillu og stendur enn mjög vel fyrir sínu. Geysilega góð bók. Eftir smá flett í henni langar mig mjög mikið að versla filmu í gömlu Polaroid myndavélina hennar mömmu sem er að rykfalla niðri í geymslu hjá mér, og taka nokkrar myndir á hana. Þó svo nýja digital vélin geti gert ALLT þá stendur gamla Polaroid alltaf fyrir sínu.

Þriðjudagur 16. nóvember 2004 kl. 21:47 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 1

reality bites

Ég er ennþá að ná mér eftir það sem Ragnheiður Gröndal söngkona sagði hjá Gísla Marteini á laugardagskvöldið.. að hún væri að verða tvítug. Hversu gamall er maður þegar uppáhalds söngkonan manns er 6 árum yngri en maður sjálfur? ÚFF

Þriðjudagur 16. nóvember 2004 kl. 15:34 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video / 1

Kynjaskipting heimilisins

Eftir að það fjölgaði í fjölskyldunni erum við komin í nýjan markhóp. Danni fékk fyrsta "ruslpóstinn" sinn þegar hann var rúmlega mánaðargamall og eftir það hef ég fengið nokkrum sinnum "tilboð fyrir barnið þitt", yfirleitt bleiur eða þvottaefni. Óli fékk hins vegar bréf í gær frá banka einum þar sem fjallað var um "reglulegan sparnað fyrir barnið".
Það hefði sennilega verið of mikið breikþrú í íslensku samfélagi að senda Óla bleiuprufurnar og mér fjármálapóstinn.

Þriðjudagur 16. nóvember 2004 kl. 13:36 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / 1

digital kaplaskjólsvegur

já, við erum orðin stafræn. Nýji afruglarinn kom í hús í gær og er kominn í gagnið og útsendingin orðin alveg bráðskýr núna, a.m.k á því sem næst á honum. Við höfum ekki náð Skjá einum inn á hann ennþá, enda þótt langsótt megi virðast þá eru símafyrirtækin í samkeppni og eru ekkert að greiða hvors annars veg, jafnvel þó það komi sér betur fyrir notendurna.
En í tilefni þessa alls þá er fjölvarpið og stöð 2 opin, við erum nebblega bara með sýn, þannig að nú getur maður eytt allt of miklum tíma í að horfa á ekki neitt.

Mánudagur 15. nóvember 2004 kl. 00:03 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video

orlofið

Ég er búin að lengja fæðingarorlofið mitt. Mér fannst illt til þess að hugsa að fara að vinna eftir næsta mánuð, þó svo vinnustaðurinn sé alveg frábær þá er strákurinn ennþá svo ungur. Þar sem það hentaði fyrir vinnustaðinn þá hef ég seinkað komu minni þangað þar til 1. mars. Þá verður Danni orðinn 10 mánaða og verður með pabba sínum í 2 mánuði, eftir það færi hann á leikskóla eða til dagmömmu.
Mikið líður mér betur núna, vitandi að eftir jólin getum við verið áfram saman heima í einhvern tíma.

Föstudagur 12. nóvember 2004 kl. 18:05 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 3

Aðalfundur

Það styttist óðum í aðalfund Pjúsarafélagsins. Hann hefst klukkan 18:42 á hinum hefðbundna fundarstað. Fundarsköp eru nokkur og góð og verður þetta vafalítið mjög fróðlegur og skemmtilegur fundur.

Fimmtudagur 11. nóvember 2004 kl. 18:24 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

jólakortin

jolakort Já jólakortin. hérna eru hugmyndir fyrir þá hugmyndasnauðu. Margt mjög fínt og einfalt þarna.. minnir mig á þegar ég var í bókagerðinni í skólanum í gamla daga.. jummjummm. Svo langar mig að panta þetta blað, Card Creations
En ég þarf eiginlega að drífa mig af stað í þetta.. Listinn er kominn upp og sennilega þarf ég að gera um 70 kort.
Nú vantar að finna pappírinn sem ég ætla að nota, helst í réttri stærð svo ég þurfi sem minnst að klippa/rífa niður. Myndina tökum við af módelinu okkar einhverntíman í næstu viku þegar nýja myndavélin verður komin í hús, sendum demó til Hansa svo þetta komi nú örugglega rétt út áður en við pöntum 70 stykki.. það tekur einhverja daga.
Á meðan er alveg nauðsynlegt að vera búin að undirbúa kortið sjálft þannig að þegar myndirnar koma að þá verði hægt að líma þetta saman. Eftir það á nefnilega eftir að skrifa á allt saman. Mér datt í hug eitt augnablik að setja jólakveðjuna fínt upp og prenta út en það er eitthvað svo sterílt. Þetta á að gera í höndunum og "koma frá hjartanu.."
Talandi um að vera vera organæseraður til helvítis.


Mér finnst reyndar tilfinnanlega vanta góðar föndurbúðir hérna. Mér finnst vera svo mikið trédrasl og frauðkúludót í öllum föndurbúðum, nennir einhver að gera svoleiðis ennþá? ok fínt að það eru ekki allir með sama smekk. Mig langar að sjá meira úrval af pappír, tímaritum og verkfærum. Kannski maður þurfi bara að fara út, þetta yrði hvortereð svo fjandi dýrt hérna heima. Ég kíki í Föndru á morgun og svo er bara að setja upp verkstæði jólasveinsins hérna heima.
Ef þú ert hrædd/ur um að vera ekki á listanum en langar í kort, settu þá adressuna þína í kommentin og ég "sé til hvað ég get gert" ;)

Miðvikudagur 10. nóvember 2004 kl. 23:24 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem heimilið / 3

missis major

frábært, skipulagsstjóri borgarinnar orðin borgarstjóri, var ekki nóg komið? Sjáið þið ekki lífsgleðina skína úr augunum á henni, lífsþróttinn í hverju brosi, hamingjusemina og trúnna á framtíð borgaranna í heilbrigðri, hreinni og fallegri borg?
Sá ég hana ekki í Addamsfamilí hérna um árið?

Miðvikudagur 10. nóvember 2004 kl. 21:31 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

hárið

hárið á mér er eins og reyttur hanahaus.. fyrir utan að veðrið og kuldinn fer ekkert sérstaklega vel með það og einhverjum finnst ofsalega gaman að tosa í hárið á mömmu sinni, þá eru hárin sem hrundu af þegar sonurinn var 3 mánaða (þetta klassíska) óðum að koma aftur.. semsagt litlar tæjur útum allt. mér er mest að skapi að snoða á mér hausinn en mig langar samt að hafa sítt hár..
þetta er kannski bara spurning um dekurdag hreinlega.

Miðvikudagur 10. nóvember 2004 kl. 15:47 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

+ SE +

Siggi Eggerts handskrifar bloggið sitt. æði! framtíðin er hafin.

Þriðjudagur 09. nóvember 2004 kl. 23:18 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

jólaskipulag

Ég veit að það er langt til jóla, en jólin eru samt bara í næsta mánuði. Ég ætla að reyna að falla ekki í þá gryfju að fara að hlakka of snemma til jólanna því reynsla undanfarinna ára hefur sýnt að stuðkvótinn getur klárast áður en jólin byrja. Það er ekki stuð.
En til að allt gangi sæmilega upp þarf að fara að skipuleggja. Jólakortin í ár verða með örlítið breyttu sniði eins og mátti búast við. Ég er þessa dagana að hanna kortið þó svo það verði að miklu leyti gert í höndunum. Samt verða þetta svo mörg eintök að það er erfitt að ætla að dekra sérstaklega mikið við hvert og eitt. Einhverjir fá svo heimagerðar jólagjafir sem á eftir að ganga frá og síðan er það auðvitað baksturinn og konfektgerðin ásamt því að njóta hvers einasta dags með litla stubb til hins ítrasta því það styttist í að orlofinu ljúki og að ég snúi til vinnu aftur.
Aðalmálið er því að byrja snemma, ætla sér ekki of mikið og slaka á því tíminn líður hraðar en mann órar fyrir.

Sunnudagur 07. nóvember 2004 kl. 21:47 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

námslánin

brillíjant fréttir þar sem ég byrja að borga niður námslánin á næsta ári.

Sunnudagur 07. nóvember 2004 kl. 21:22 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

hæ hó jibbí jey!

nýja myndavélin hefur verið frátekin í fríhöfninni og bíður þess að foreldrar Óla stoppi við og taki hana með sér í næstu viku. Þau eru á leið til Denia á Spáni að hitta franska vini sína, verða þar í viku. Við skoðuðum myndavélina í gær hjá umboðinu og kolféllum fyrir henni. Ég get varla beðið eftir að fá þau heim aftur.

Föstudagur 05. nóvember 2004 kl. 18:27 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ljósmyndun

Olíumálið

Þar sem kaffistofan á vinnustaðnum mínum í dag er ekki mjög fjölmenn þá þarf ég aðeins að viðra mig hérna.

› framhald...

Föstudagur 05. nóvember 2004 kl. 14:55 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 5

sætabrauðsdrengurinn minn

Ég verð eiginlega að benda á video sem ég setti inn í gær með syni mínum, sem er á einhverju sælkeratrippi. Hann veit sko nákvæmlega hvað er gott að borða og hvað ekki, og það sést vel í þessu myndbandi (3.5mb innanlands).

Fimmtudagur 04. nóvember 2004 kl. 15:58 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem uppeldi / 2

me likes

ójá!

Samkvæmt þessu er ég með mjög svo hjartvæna skúffuköku í ofninum.

Fimmtudagur 04. nóvember 2004 kl. 15:49 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem matur

með ofbirtu í augunum?

Ég fór á einstaklega áhugaverðan fyrirlestur í kvöld, maðurinn heitir Wolfgang Weingart og er ein skærasta stjarna í grafískri hönnun á 20. öldinni. Hann er gangandi sögukafli í námsbókunum og þekkir auðvitað allar hinar stjörnurnar eins og það sé bara .. alveg sjálfsagt.
Hann talaði aðallega um bókina sína (sem hann sagði að við ættum endilega ekki að kaupa heldur fá lánaða á safni og ljósrita upp úr henni, áhugavert á þessum copyright tímum) og þær aðferðir sem hann notast við til að nálgast leturhönnun. Leturhönnun er í hans skilningi ekki að hanna letur heldur að hanna MEÐ letri. Hann er lærður letursetjari, starf sem er útdautt í dag en hefur alveg óskaplega mikinn sjarma og er því algerlega af gamla skólanum. Hann sagði samt sem áður frá því að árið 1984 var honum boðið til San Fransisco þegar var verið að kynna hina nýju MacIntosh vél, þá fannst honum þetta svolítið sniðug græja og sá greinilega að þetta var framtíðin, þá gaf Steve Jobs forstjóri Apple honum 4 vélar til að fara með í skólann til Basel í Sviss (þar sem hann kenndi). Fljótlega fékk hann samt leið á henni því hann gat ekki komið við pappírinn eða blýið eða fundið lyktina af fixernum í ljósmyndakompunni. Síðan þá hefur hann ekkert verið fyrir tölvur.
Þetta er alvöru maður.


linkar:
svipaður fyrirlestur
bókin "my way to typography"

Miðvikudagur 03. nóvember 2004 kl. 23:17 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun