i want you!
Mig er sjúklega farið að langa í nýju myndavélina. Gamla vélin er að hakka í sig batteríin og skilar ekki alltof skýrum myndum.. og Danni stækkar þvílíkt mikið með hverjum deginum sem líður án þess að ég nái að taka flottar myndir.
Látið mig vita ef þið eigið leið um fríhöfnina!
Það væri nú reyndar ekki slakt að skella sér til London bara.
Flokkað sem ljósmyndun. Þar eru 6 færslur.
/ Álit
Ansk**** ég var að koma frá London, hefði verið´lítið mál að kippa með eins og einni myndavél:-(
Tengda -:
Það er aldrei að vita nema við gamla settið förum í gegn um fríhöfnina fljótlega. Fengum smá kast í gærkvöldi. Ég væri glöð ef ég gæti reddað myndavélinni fyrir þig í leiðinni.
Aslaug:
Eda thu getur bara komid og heimsott mig til london! Handlegsbrotnir arkitektanemar hafa litid annad ad gera en ad rolta um i soho og drekka latte!!
það væri þokkaleg snilld! (fokking brilliant réttara sagt)
en handleggsbrotin? hvað á það að þýða Áslaug mín, og ég hélt líka að þú værir í Köben. Svona veit maður lítið. Það væri réttast að kíkja á þig í London fyrst maður klikkaði á Akureyri síðasta sumar. ;)
Heyrðu Áslaug.. eigum við ekki 10 ára London-afmæli um þessar mundir ;D Þarf ekki að fagna því á viðeigandi hátt?
Gauja.. var kastið með exi og kúbeini kannski? og já, það er um að gera að kaupa nýtt í nýja fataskápinn :)
Tengda:
Allavega með hamri og sög ! En það er ekki liðið hjá ennþá, aldrei að vita hvaða verkfæri verða notuð.
Aslaug:
jeps.. nuna er eg handleggsbrotinn skiptinemi i London ... ju gott ef ekki 10 ar! tha erum vid ordnar svolitd gamlar- eda kannski vorum vid bara rosalega ungar tha?... well eg verd her allavegana fram i februar (med jola-hlei) og vonandi fram i mai...



RSS veita