skemmtilegt!

Það er ótrúlegt hversu mikið magn af vökva getur komið upp úr manneskju sem er 65 cm að lengd. Danni tók sig til og gubbaði yfir mig, sjálfan sig, stólinn og stofugólfið í­ dag og var alveg lemstraður á eftir greyið. Það var ótrúlega sárt að horfa á barnið á eftir, alveg aumur og linur eins og maður veit að maður er sjálfur eftir slí­kar athafnir.
Hann hefur reyndar ekki endurtekið þetta í­ kvöld þannig að ég vona að pestin sé liðið hjá


Þriðjudagur 28. september 2004 kl. 20:25
Flokkað sem uppeldi. Þar eru 47 færslur.

/ Álit

batgirl:

já æi litla greyið þetta er ekki gaman!

28.09.04 22:26