puttakláði

Mig klæjar í­ puttana mig langar svo að byrja á einhverri handavinnu. ég veit að ég á ekki eftir að hafa neinn tí­ma þegar ég byrja að vinna aftur svo það er eins gott að nota tí­mann núna. ég er reyndar komin í­ skrappið eins og aðrar súpermömmur (skrapp er föndur/myndaalbúm - grahö verkefni húsmæðra í­ dag) nema ég nenni ekki að kaupa einhverja lí­mmiða og skapalón dýrum dómi heldur nota tölvuna þeim mun meira, verður minna væmið, -minna crap.
Svo er ég að spá í­ hvort ég eigi að rifja upp prjónahæfileikana sem ég öðlaðist í­ grunnskóla og gera húfu á mig eða soninn. ég er reyndar hrædd um að þetta sé ekki eins og það að læra að hjóla því­ ég er viss um að húfa yrði mér ofurliði.
Kannski er þetta jólaföndrið sem er að byrja að krauma í­ manni, aldrei of snemmt að byrja á því­ :)


Þriðjudagur 28. september 2004 kl. 23:09
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

Tengdó:

Mér líst mjög vel á þessar húfuuppskriftir og það er ekki spurning að prjónakunnáttan leynist eins og hjólakunnáttan. Já - svo fer að veða tími fyrir jólaföndrið, það er sko gaman

29.09.04 09:49


freyja:

Svo getur þú heklað poncho, mun auðveldara en ég hélt, ég byrjaði á einu fyrir 8 dögum og er búin með meira en helminginn, og ég sit sko ekki sveitt við þetta, gríp í þetta þegar ég freistast til að horfa á sjónvarpið (i.e. all the time)
Gunna er meira að segja líka að hekla, ég mundi nú ekki alveg handbrögðin, þá var nú gott að hafa mömmu til að rifja þetta upp..

Gangi þér vel með þetta :)

Kv.

Freyja fingrafima

29.09.04 11:55


dæja:

heyrðu já ponsjó, mig langar geðveikt í svoleiðis.. það er líka eitthvað svo stórt og vígalegt að sitja með á köldum haustkvöldum.
ég kíki til þín og bið þig að fitja upp (er það ekki annars gert í hekli? hehe)

annars virðast þessar húfur vera nokkuð auðveldar, og flottar.. sem hvetur mann mjög til að klára þær ;)

hver veit, hver veit

29.09.04 20:59


freyja:

Já, kíktu til mín og ég skal koma þér af stað, nú ef ég verð fyrri til að koma á þinn landshluta þá kíki ég til þín!!! Ég er með einhverja uppskrift af ponsjói, en ég gat ekki gert þetta sko, mamma þurfti að sýna mér hvað "loftlykkja" og "stuðlar" voru, en svo er þetta bara leikur einn...

Gangi þér vel...

:)

F

29.09.04 22:19


almar:

Ég er svo hneykslaður hehe
.. Who´s up for a game of chess :)

30.09.04 17:31


batgirl:

já klæjar einmitt líka í puttana í að byrja á einhverju föndri en þá verður algjörlega ekkert út neinu öðru.....:/
þannig að endilega gerðu bara tvö ponsjó mitt má vera svart!:)

30.09.04 21:05


kristjana:

já dagný áfram með smjörið bara...ég er meira að segja að sauma út...halló ég viss um að jóhanna myndi leggjast í gröfina ef hún myndi frétta þetta enda er ég að spá í að senda henni krosssaums jólakort:) og svo er ég að spá í að gera mér "ponsjó" af því freyja segir að það sé svo létt:)
upp með prjónaputtana ljúfan...

01.10.04 17:52