komin aftur
ég er komin aftur, þessi pása var kærkomin. ég vissi ekki hvernig ég vildi hafa þetta og vissi þá ekki hvað ég ætti að segja og því best að taka sér frí frá þessu öllu. Svo auðvitað í pásunni er ég búin að blogga í huganum á fullu og eins og við er að búast, búin að gleyma flestu því sem ég hef ætlað að skrifa.
það er stundum sem maður dettur ofan í svona sjálfsskoðun (eða sjálfs-vefs-skoðun öllu heldur) að maður spyr sig fyrir hvern er ég að gera þetta? hvað finnst fólki um mig þegar það les þetta? það er eins og maður þurfi að réttlæta það fyrir sjálfum sér, eða öðrum, að maður er að skrifa það sem maður er að hugsa. Kannski er þetta bara feimnin sem er að tala, sem ég hef ekki yfirstigið þrátt fyrir að hafa verið að þessu í nærri 5 ár. En auðvitað á manni að vera sléttsama um það hvað maður haldi að aðrir hugsi, menn geta þá bara farið eitthvert annað!
En þegar maður er búinn að venja sig á svona útblástur eins og bloggið er í svolítinn tíma og tekur svo pásu, þá er maður orðinn nokkurn veginn fullur af hugsunum sem maður hefði þurft að koma frá sér jafnóðum, en ekkert kemur náttúrulega ef maður ætlar að æla þessu út öllu í einu.
Fyrir vikið er maður einn hrærigrautur í kollinum.
En allavega, það er gott að geta byrjað á ferskum grunni.
Eva sem póstaði með mér er reyndar hætt þannig að nú á enginn að vera í vafa með hver er að skrifa, þetta er allt undan fingrunum á mér. Vonandi bara að Eva gefi sér tíma í að kommenta og svona og vera þannig áfram með :)
Flokkað sem netið. Þar eru 107 færslur.

