koddasaga
Fyrir helgi fór ég með sængurnar okkar og koddann hans óla í hreinsun í lókal hreinsunina, á föstudaginn náði ég svo í það en þá vantaði koddann. þetta er nota bene koddinn sem hefur fylgt óla frá því í æsku, einn af heimanmundum hans og hefur gengið í gegnum ýmislegt (sagði ég einhverntíman gubb-í-koddann söguna (2001)? hún er snilld). í morgun hringdi ég svo í þá til að grenslast fyrir um þennan dýrgrip sögunnar:
Afgreiðslumaðurinn: Var þetta gamall koddi?
ég: tja, nei.. jú eða kannski
A: Já, hann hefur verið orðinn eitthvað fúinn, hann fór nefnilega í tætlur þarna hjá þeim (þessu var sko outsourcað)
é: Hvað ert'að segja?
A: Já, það var síðan slegið af heildarverðinu andvirði koddans, 500kr.
Ef maðurinn vissi hvað þessi koddi hefði mikla sögu þá hefðum við örugglega fengið ársmiða í hreinsun, ég bara kunni ekki alveg við að segja honum það.
En semsagt, óli þarf að fara á stúfana og máta nýjan kodda.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
æi ohh ekkert smá pirrandi...koddinn er eins og sál manns! "heim" er þar sem koddinn er!
já Baddý hugsaðu þér ef þetta hefði komið fyrir koddann þinn!! Gefðu honum nú sérstakt *hugs* í kveld

