DíS
ég og Eva Björk fórum að sjá Dís í gærkvöldi. það voru frekar fáir í bíó en þeir sem þar voru féllu algjörlega í skilgreiningu um markhóp myndarinnar. Hvað um það, myndin var ágæt. Svolítið tilgerðarleg á köflum miðað við að eiga að endurspegla raunveruleikann í dag. Leikararnir voru mjög góðir, Ilmur (sem útskrifaðist á sama tíma og ég) fannst mér einna best, að öllum öðrum ólöstuðum. það koma líka móment sem eru alveg óborganlega fyndin. Settið er líka oftast mjög flott en eins og með allar samtímamyndir á þessi eftir að verða hrikalega hallærisleg eftir nokkur ár. það verður allavega forvitnilegt að sjá hvernig hún eldist.
Flokkað sem video. Þar eru 47 færslur.
/ Álit
já mig langar mikið til að sjá þessa mynd, mér fannst bókin æði og gat sett mig inní nokkur hlutverk þar, kannski ég plati jóku beib með mér!

