11. sept
það var í dag fyrir þremur árum að bylting varð í lífi okkar sem við búum við enn í dag. ég get ekki annað sagt en að það hafi verið breyting til hins betra. þann 11. september 2001, e.h., gerðum við tilboð í íbúðina sem við búum í enn í dag, daginn eftir var tilboðið samþykkt. Við fluttum svo inn rétt fyrir jólin.
það gerðist eitthvað annað þennan dag, ég bara man ómögulega hvað það var.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
Ég veit hvað gerðist líka, Daggi fæddist þennan dag fyrir nokkuð mörgum árum :)
Altsvo Daggi-kaggi pabbi Sirrýar.
Og Anna Lindh einhver ráðherra í svíðþjóð dó í fyrra í svíþjóð eftir að hafa verið stungin deginum áður.
Mar veit svo ótrúlega mikið ;)
ég man allavegana hvað ég var að gera...sat í anddyrinu í fb og var að reyna að lesa íslandsklukkuna en sofnaði með andlitið út í rúðuna, þannig að allir sem löbbuðu framhjá sáu í gapandi ginið á mér!!! hehe

