útsölur

ég fór í­ mikinn verslunarleiðangur um sí­ðustu helgi, stóðst ekki útsöluna í­ expert eftir að hafa farið með Hönnu systur þangað deginum áður. ég keypti nefnilega nýjan prentara og nýjan örbylgjuofn. Enda var gamli Samsung örbylgjuofninn sem Mundi bar inn einn daginn talsvert farinn að segja til sí­n. ég hef reynt að finna þetta Samsung logo sem var á ofninum en ég held að fyrirtækið sé búið að skipta nokkrum sinnum um merki sí­ðan það var sett á þennan ofn. það er hægt að nálgast þennan forláta 35kg örbylgjuofn í­ nytjamarkaði Sorpu.
En ég er semsagt búin að heita heimilisbókhaldinu því­ að versla ekki meira í­ þessum mánuði, nema kannski popp í­ nýja ofninn.


Miðvikudagur 07. júlí 2004 kl. 20:25
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.