líttu í búðarborðið
ég þarf að gera mér ferð í sjoppu á eftir til að sjá eitt af mínum hönnunarverkum í réttu ljósi.. lakkrísbarinn er nefnilega kominn í búðir, allavega sá ég hann í krónubækling sem kom inn um lúguna. ég fer nefnilega oft ekki mikið lengra en niður í póstkassa sjáiði til.
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur.
/ Álit
HEI! Ég er alltaf að kaupa svona, þetta er búið að vera til í nokkrar vikur, það eru alltaf 3 saman á tilboði í Kaskó :) Þetta er meiraðsegja helvíti gott bara.
Ég hef greinilega freistast af umbúðunum!
Þær eru allavegana grípandi, annars hebbði ég nú örugglega ekki ákveðið að kaupa þetta in the first place :)
Fékstu ekki lifetime supply of Mona´s licorice bar að launum??
gunna:
vá til hamingju! skál fyrir lakkrísbarnum!
Guðný móðursystir:
Jæja. Ég fékk mér svona lakkrísbar á norðurleið í gær - hefði trúlega horft betur á umbúðirnar ef ég hefði bara vitað......
En mikið var barinn góður - og umbúðirnar flottar!!

