dagurinn
Fór á tupperware kynningu hjá Evu í gær og var búin að lofa mér að kaupa ekkert í þetta skipti... Sjensinn! Fór út með pöntun á fjórar dollur og eitt snilldar eldfast mót úr sílikoni (fyrir kryddkökurnar og þannig). ágætiskaup vona ég. Er svo að fara á eftir suður í Hafnarfjörð þar sem aprílmömmur ætla að hittast aftur með grislingana sína, það verður sennilega metmæting. 13 stykki plús mömmurnar. Ekki býð ég í þetta þegar skarinn verður farinn að hlaupa út um allt.
Svo þarf ég að fara að koma með sumarlúkk, þetta myrkur hérna gengur ekki mikið lengur.
Fimmtudagur 01. júlí 2004 kl. 10:05
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
eva:
tupperware kynningu! ég veit ekki hvað þú ert að meina dagný mín, ég hélt enga dollukynningu. og ég er ekki heldur í nenum mömmuklúbb. ég er á metallicu núna að hedbanka!

