útsölur

ég fór í­ mikinn verslunarleiðangur um sí­ðustu helgi, stóðst ekki útsöluna í­ expert eftir að hafa farið með Hönnu systur þangað deginum áður. ég keypti nefnilega nýjan prentara og nýjan örbylgjuofn. Enda var gamli Samsung örbylgjuofninn sem Mundi bar inn einn daginn talsvert farinn að segja til sí­n. ég hef reynt að finna þetta Samsung logo sem var á ofninum en ég held að fyrirtækið sé búið að skipta nokkrum sinnum um merki sí­ðan það var sett á þennan ofn. það er hægt að nálgast þennan forláta 35kg örbylgjuofn í­ nytjamarkaði Sorpu.
En ég er semsagt búin að heita heimilisbókhaldinu því­ að versla ekki meira í­ þessum mánuði, nema kannski popp í­ nýja ofninn.

Miðvikudagur 07. júlí 2004 kl. 20:25 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

ég hef sjaldan hlegið eins

ég hef sjaldan hlegið eins mikið. Baddý snillingur!

Miðvikudagur 07. júlí 2004 kl. 16:32 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

lí­ttu í­ búðarborðið

ég þarf að gera mér ferð í­ sjoppu á eftir til að sjá eitt af mí­num hönnunarverkum í­ réttu ljósi.. lakkrí­sbarinn er nefnilega kominn í­ búðir, allavega sá ég hann í­ krónubækling sem kom inn um lúguna. ég fer nefnilega oft ekki mikið lengra en niður í­ póstkassa sjáiði til.

Föstudagur 02. júlí 2004 kl. 14:35 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 3

dagurinn

Fór á tupperware kynningu hjá Evu í­ gær og var búin að lofa mér að kaupa ekkert í­ þetta skipti... Sjensinn! Fór út með pöntun á fjórar dollur og eitt snilldar eldfast mót úr sí­likoni (fyrir kryddkökurnar og þannig). ágætiskaup vona ég. Er svo að fara á eftir suður í­ Hafnarfjörð þar sem aprí­lmömmur ætla að hittast aftur með grislingana sí­na, það verður sennilega metmæting. 13 stykki plús mömmurnar. Ekki býð ég í­ þetta þegar skarinn verður farinn að hlaupa út um allt.
Svo þarf ég að fara að koma með sumarlúkk, þetta myrkur hérna gengur ekki mikið lengur.

Fimmtudagur 01. júlí 2004 kl. 10:05 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1