skápurinn
ég hef ætlað að tæma fataskápinn í vinnuherberginu síðan um jólin en það er eingöngu drasl í honum sem á að fara niður í geymslu eða út í rusl (sbr einn gamall non-compatible-anymore skanni) en það lengsta sem ég hef komist í því er að opna dyrnar á skápnum. Ekki það að mér fallist hendur því það er ekki svo mikið í honum, heldur er þetta eitthvað svo óþolandi leiðinlegt að ég gæti ælt. þess vegna fresta ég þessu fram og til baka. Kannski drullast ég til að taka til í þessum skáp næst þegar ég á að gera skattaskýrsluna, þá gerir maður allt þetta leiðinlega sem maður er búinn að treina allt árið. Bara verst ef fötin hans Danna eru útum allt þangað til.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
eva:
hi hi, Danni og Kommi :)
hehehe,
ég tæklaði samt skápinn í gærkvöldi og fann gömlu megadeath og metallica diskana hans Óla. Hann var mjög kátur með það
eva:
Gott mál, fyrir hann allavega. Ég var aftur að reyna að skrifa í gestabókina hjá Danna og tókst ekki. Er farið að halda að ég og mín fjölskylda séum í banni.
já skrýtið, virkar fínt hjá mér

